Það er meira slúður í enska boltanum en Formúlu 1 26. mars 2008 13:33 Flavio Briatore segir QPR-menn ekki ætla út í neitt rugl þó þeir eigi nóg af peningum AFP
Flavio Briatore, meðeigandi í QPR, segist ekki ætla að láta umboðsmenn kúga sig þó stjórn félagsins ætli sér stóra hluti á næstu árum. Félagið skrifaði nýverið undir þriggja milljarða króna styrktarsamning við íþróttavöruframleiðandann Lotto. Briatore er mjög efnaður og auk þess að eiga helming í QPR er hann liðsstjóri Renault-liðsins í Formúlu 1. Hann keypti sig inn í QPR í nóvember á síðasta ári ásamt Formúlumógúlnum Bernie Ecclestone og Lakshimi Mittal, en þeir eru tveir af efnuðustu mönnum á Bretlandseyjum. QPR var í fallbaráttu í B-deildinni þegar þeir keyptu, en nú á að tjalda öllu til að koma liðinu í fremstu röð. Þeir félagar hafa gefið það út að koma eigi liðinu í Meistaradeildina eftir aðeins fimm ár. Briatore segist þó ekki ætla að feta í fótspor manna eins og Roman Abramovich vinar síns hjá Chelsea þegar kemur að því að byggja liðið upp. Fjölmiðlar eru strax farnir að finna peningalykt af QPR og hafa orðað það við stórstjörnur á borð við Luis Figo hjá Inter Milan. "Alli halda að þeir geti komið hingað og mergsogið okkur, en hér er ekkert að sjúga. Það getur vel verið að hluthafarnir eigi mikið af peningum, en það þýðir ekki að félagið sé ríkt. Það eru draumórar að ætla að við séum að fara að kaupa leikmenn eins og Figo til félagsins. Það er mikið slúðrað í enska boltanum - meira að segja meira en í Formúlu 1," sagði Briatore. "Chelsea er Chelsea og QPR er QPR. Við munum ekki kasta peningunum okkar út um gluggann. Við viljum leikmenn sem leggja hart að sér, enga stjörnuleikmenn. Við viljum fyrst og fremst leikmenn sem endurspegla metnað stjórnarinnar," sagði Briatore. QPR er sem stendur í 14. sæti í B-deildinni á Englandi og sagt er að eigendurnir séu tilbúnir að eyða um 10 milljónum punda til leikmannakaupa í sumar. Þá þykir ljóst að ef metnaður félagsins er jafn mikill og eigendurnir vilja meina, þurfi liðið að flytja á nýjan heimavöll fljótlega. Staðir eins og Hammersmith og Fulham hafa verið nefndir í því sambandi.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira