Everton og West Ham skildu jöfn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. mars 2008 19:23 Dean Ashton og Freddy Sears fagna marki þess fyrrnefnda í dag. Nordic Photos / Getty Images
Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni lauk með jafntefli en þar mættust Everton og West Ham. Yakubu kom Everton snemma yfir í leiknum með laglegu marki en Dean Ashton jafnaði metin í seinni hálfleik með skalla. James Tomkins var óvænt í byrjunarliði West Ham en hann er einungis átján ára gamall. Hann kom í stað Matthew Upson sem á við meiðsli að stríða. David Moyes, stjóri Everton, ákvað að setja Tim Cahill í byrjunarliðið þó svo að hann væri tæpur vegna meiðsla. Hann átti eftir að sjá eftir því þar sem Cahill fór meiddur af velli eftir tíu mínútna leik. Það var táningurinn Tomkins sem gerði afdrifarík mistök í marki Everton. Hann missti af boltanum og Yakubu lét ekki bjóða sér það tvisvar og afgreiddi knöttinn í netið. Yakubu kom knettinum aftur í netið skömmu síðar en hann var réttilega dæmdur rangstæður. West Ham komst nærri því að jafna í fyrri hálfleik er Dean Ashton átti skot úr aukaspyrnu sem Tim Howard varði á ótrúlegan máta. Snemma í síðari hálfleik kom Freddie Sears inn á fyrir Luis Boa Morte en Sears skoraði sigurmark West Ham gegn Blackburn í sínum fyrsta leik um síðustu helgi. Innkoma hans hafði jákvæð áhrif á lið Everton og á 68. mínútu kom jöfnunarmark West Ham. Lucas Neill átti fyrirgjöfina frá hægri og Tim Howard var nálægt því að verja skalla Ashton en af honum fór boltinn í stöngina og inn. Sears komst svo tvívegis nálægt því að skora sigurmarkið annan leikinn í röð undir lokin, í bæði skiptin eftir mistök Phil Jagielka. Í seinna skiptið náði hann að leika á Howard í markinu en boltinn hafnaði í stönginni.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira