Hannes óskaði eftir því að verða seldur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2008 14:25 Hannes í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Anton
Hannes Þ. Sigurðsson sagði í samtali við Vísi að hann hefði sjálfur óskað eftir því að verða seldur frá norska úrvalsdeildarliðinu Viking. Félagaskiptaglugginn er lokaður víðast hvar í Evrópu en hann er opinn í Noregi, Svíþjóð og Rússlandi til næstu mánaðamóta. „Það er annað hvort Svíþjóð eða Síbería," sagði hann í léttum dúr en hann sagðist helst ekki vilja spila með öðru félagi í Noregi. „Maður á aldrei að segja aldrei en ég vildi helst komast til Svíþjóðar." Æskufélagi Hannesar og liðsfélagi úr FH, Sverrir Garðarsson, samdi nýverið við sænska úrvalsdeildarliðið Sundsvall sem hefur sýnt Hannesi áhuga. „Ég hefði ekkert á móti því að hitta hann aftur, af því að ég kannast nú aðeins við hann." Fram kom hér á Vísi að það hefði verið fjárfestingarfélag sem fjármagnaði kaupin á Sverri og því aldrei að vita nema að félagið fari sömu leið við kaupin á Hannesi. Hann segir að Viking sé ekki að setja of háan verðmiða á sig. „Nei, ég held ekki. Ég held að þeir séu að fara fram á mjög sanngjarnt verð. Þeir skilja mína afstöðu mjög vel enda finnst engum gaman að sitja á bekknum." Þetta er í annað skiptið á ferlinum sem hann leikur með Viking en það gerði hann einnig á árunum 2002 til 2005. Þá fór hann til Stoke þar sem hann var í tvö tímabil, svo til Bröndby og að lokum til Viking. „Mér líður mjög vel í Stafangri og ber miklar taugar til félagsins. Ég kom við sögu í næstflestum leikjum allra leikmanna hér þó svo að ég hafi ekki alltaf verið í byrjunarliðinu. En ég vil koma til félags þar sem ég fæ að spila reglulega."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira