Lífið

Oprah brjáluð út í dr. Phil

Heimsókn sjónvarpssálans dr. Phil til Britney Spears á spítalann virðist ætla að draga dilk á eftir sér. Foreldrar Britney og samtök sálfræðinga hafa fordæmt afskiptasemina, og nú bætist sjálf Oprah, spjallþáttadrottningin sjálf í hópinn. Hún mun að sögn pressunnar vestanhafs vera komin með algerlega nóg af skjólstæðingi sínum, sem henni finnst hafa staðið sig illa í málinu.

Aðsögn heimildamanna blaðsins bjóst Oprah við því að Phil bæðist afsökunar á því að hafa notað veikindi Spears til að vekja athygli á sér. Það gerði hann ekki, heldur einbeitti sér að þvi að kynna þáttinn sinn, sem hefur víst ekki gengið of vel.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.