Ávinningur kjarasamninga horfinn og gott betur 17. mars 2008 21:50 Skúli Thoroddsen gefur peningastefnu stjórnvalda falleinkunn. MYND/Hari
Peningamálastefna stjórnvalda hefur beðið afhroð og kjaraskerðing er orðin staðreynd hjá almenningi að mati framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins. Þá segir hann íslensku krónuna einungis brúklega í Matador. Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, gerir hræringar í efnahagslífinu að umtalsefni í pistil á heimasíðu sambandsins. Þar segir hann að það sé gömul saga og ný að beita gengisfellingum til að hirða aftur umsamdar kauphækkanir. Það kunni að vera meginástæða þess að stjórnvöld haldi í krónuna, að velta efnahagsvandanum yfir á launafólk með kjaraskerðingum í formi gengisfelling. Sú sé raunin nú því gengið sé látið falla. Skúli segir enn fremur að vonlaust sé að búa við smámynt eins og íslensku krónuna ef hér eigi að ríkja frelsi í gjaldeyrisviðskiptum og frjálst flæði fjármagns. ,,Svoleiðis mynt er e.t.v. brúkleg í Matador í lokuðu herbergi, en ekki í alþjólegum viðskiptum. Tilraunin frá 2001 um flotgengi og verðbólgumarkmið var dæmd til að mistakast. Peningamálastefna stjórnvalda hefur beðið afhroð. Ónýt króna í ónýtum Seðlabanka. Spurningin er sú hversu lengi menn vilja berja höfði sínu við stein. Fyrir allan almenning er peningamálastefna Seðlabankans martröð og í raun rothögg fyrir þá sem tekið hafa lán í erlendri mynt," segir Skúli og nefnir dæmi. ,,Sá sem tók 5 milljón króna gjaldeyrislán í fyrra og borgaði 45 þúsund kr. á mánuði í afborganir, borgar núna tæp 90 þúsund. Fjölskylda sem tók 20 milljón króna lán til íbúðakaupa í fyrra, jók skuldir sínar um milljón í morgun. Yfir vofandi verðhækkanir á öllum innflutum varningi eru svo næsta vers. Bensínið og olía hækkar þó líklega strax í dag. Það sem um var samið 17. febrúar s.l. er horfið og gott betur. Kjaraskerðingin er staðreynd."
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjá meira