Brigitte Bardot dæmd fyrir niðrandi ummæli um múslima 3. júní 2008 14:49 Bardot hefur lengi barist fyrir réttindum dýra.
Leikkonan Brigitte Bardot var fyrir rétti í París í dag fundin sek um að ýta undir mismunun og kynþáttahatur með ummælum sínum um múslima. Leikkonan, sem er mikill dýraverndunarsinni, sagði í bréfi til Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta að hún væri „sárþreytt á að vera undir hælum á þessu fólki, sem eru að eyðileggja okkur og eyðileggja landið okkar með því að fara sínu fram." Ummælin, sem einnig birtust í fréttabréfi hennar, voru í kjölfar múslimahátíðarinnar Aid el-Kebir, sem er haldin hátíðleg með því að slátra sauðfé. Bardot hefur fjórum sinnum áður verið dæmd fyrir sömu sakir, en í þetta sinn voru það frönsku mannréttindasamtökin MRAP sem kærðu ummælin. Leikkonan var dæmd til að greiða 1,7 milljónir í sekt og að greiða samtökunum rúmar hundrað þúsund krónur í skaðabætur. Lögfræðingur Bardot útilokaði ekki að dómnum yrði áfrýjað. „Hún er þreytt á þessum réttarhöldum," sagði lögfræðingurinn. „Hún hefur á tilfinningunni að fólk vilji þagga niður í henni, en hún mun ekki láta þagga niður í baráttu sinni fyrir réttindum dýra."
Mest lesið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Menning Dolly Parton látin Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Fleiri fréttir Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Sjá meira