Dagbók Matthíasar: Fimmtán milljóna læknisreikningur forsetafrúar sendur ríkinu 18. ágúst 2008 01:05 Ólafur Ragnar Grímsson
Í dagbókarbroti Matthísar Johannessen frá 3. júlí 1998 sem hann birtir um helgina kemur fram að Davíð Oddsson hafi haft áhyggjur af fimmtán milljóna króna reikning sem ríkið fékk sent vegna læknismeðferðar forsetafrúarinnar Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur. „Davíð hafði aftur á móti verulegar áhyggur af öðru máli. Hann sagði að það hefði komið 15 milljón króna reikningur í skrifstofu sendiherra Íslands í Washington sem fyrsta greiðsla fyrir læknismeðferð forsetafrúarinnar í Seattle. Enginn hefði minnzt á þetta einu orði og þeir Halldór Ásgrímsson vissu ekki hvernig með skyldi fara. Ef neitað yrði að greiða þá yrðu þeir úthrópaðir sem illmenni og yrðu að segja af sér, en ef greitt væri kæmi að sjálfsögðu að því að slíkar greiðslur þyrfti einnig að inna af hendi fyrir þá sjúklinga aðra, sem minna mega sín. Hann ætlar víst að láta Tryggingastofnunina kanna þetta mál til hlítar og ræða það síðan við forystumenn stjórnarandstöðunnar svo að hann sitji ekki uppi með hneykslismál að lokum. Samfylking í þessu máli sé eina ráðið til að komast að einhverri niðurstöðu, svo óþægilegt sem þetta væri. Þetta er að sjálfsögðu á fárra vitorði eins og margt annað í stjórnsýslu okkar sem bezt er að hafa sem fæst orð um. En sendiherra Íslands í Washington, Jón Baldvin Hannibalsson, var víst fljótur að senda reikninginn heim til Reykjavíkur og vísa ákvörðunum frá sér til þeirra háu herra sem landinu stjórna." Úr dagbók Matthísar Johannessen sem birt er á vefsvæði hans, matthias.is.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Sjá meira