Kvíðir því að fara í fangelsi 6. nóvember 2008 19:03
Hæstiréttur staðfesti í dag árs fangelsi yfir Þórði Jónsteinssyni fyrir að verða tveimur að bana og stórslasa ungan dreng í umferðarslysi fyrir tæpum tveimur árum. Faðir drengsins og stúlkubarns sem lést í slysinu undrast úrræðaleysi gegn ökuníðingum og segist horfa öðrum augum á lífið. Þórður ók bifreið sinni gáleysislega vestur Suðurlandsveg á Sandskeiði, þar sem hann ók fram úr vörubíl og framan á fólksbíl sem kom úr gagnstæðri átt. Í árekstrinum lést farþegi í bíl Þórðar tæplega þrítugur karlmaður, en í hinum bílnum var faðir með tvö börn sín, fimm ára dóttur og átta ára son. Stúlkan beið bana og drengurinn lamaðist fyrir neðan mitti og faðir þeirra slasaðist. Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms yfir Þórði og dæmdi hann í 12 mánaða fangelsi, sem ekki þótti ástæða til að skilorðsbinda. Við mat á refsingu yfir Þórði var meðal annars litið til þess að hann hafði í alls níu skipti eftir slysið verið staðinn að hraðakstri. Hinn dæmdi Þórður Jósteinsson sagði í samtali við fréttastofu að hann væri ósáttur við dóminn sem hann telur of þungan. Hann segist jafnframt kvíða því að fara í fangelsi. Kolbrún Sævarsdóttir, sem sótti málið, sagði í samtali við fréttastofu í dag að miðað við dómafordæmi þá væri þessi dómur þyngri en það sem verið hefði og það væri ánægjulegt.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira