Phelps búinn að taka gull í bronsgreinunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. ágúst 2008 09:22 Michael Phelps fagnar sigri í 200 metra skriðsundi. Nordic Photos / AFP
Þó svo að Michael Phelps sé „aðeins" búinn að vinna til þriggja gullverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking mætti halda því fram að erfiðustu hindranarnar væru yfirstaðnar. Á Ólympíuleikunum í Aþenu fyrir fjórum árum vann Phelps til sex gullverðlauna og tveggja bronsverðlauna. Hann náði þar með ekki að jafna met Mark Spitz sem vann sjö gullverðlaun í sundi á Ólympíuleikunum í München árið 1972. Phelps er hins vegar búinn að vinna gull í báðum þeim greinum sem hann fékk brons í fyrir fjórum árum - 4x100 metra boðsundi karla í skriðsundi og 200 metra skriðsundi. Fyrri greinin var ótrúlega spennandi en Bandaríkjamenn tóku gullið á hreint ótrúlegum lokaspretti þegar franska sveitin virtist vera með sigurinn í hendi sér. Í nótt vann hann svo öruggan sigur í 200 metra skriðsundi og setti um leið nýtt heimsmet. Hann kom tveimur sekúndum á undan næsta manni í mark. Dagurinn á morgun verður þó erfiður en þá keppir hann væntanlega til úrslita í tveimur greinum - 200 metra flugsundi og 4x200 metra skriðsundi. Alls hefur Phelps unnið til níu gullverðlauna sem er metjöfnun. Mark Spitz, frjálsíþróttakappinn Carl Lewis frá Bandaríkjunum, Paavo Nurmi sem var einnig þekktur sem „Finninn fljúgandi" og Larysa Latynina, fimleikakona frá Úkraínu unnu öll einnig til níu gullverðlauna. Það er nokkuð ljóst að Phelps mun bæta met þeirra, væntanlega á morgun.
Mest lesið Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Fullnaðarsigur Arnars Íslenski boltinn Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Sport Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Enski boltinn Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Golf Eriksen búinn að finna sér nýtt félag Fótbolti Yankees heiðruðu Charlie Kirk Sport Annað af fórnarlömbum Asencio fyrirgefur honum Fótbolti Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Körfubolti Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Enski boltinn Fleiri fréttir Þjálfara kvennaliðs Sheffield United vikið tímabundið frá störfum Fékk tveggja vikna bann og sekt fyrir að hrinda starfsmanni lyfjaeftirlits Dagleg mótmæli trufla Spánarhjólreiðarnar Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Innbrot í Kaplakrika: „Tóku peningahirsluna og brutu hana upp“ Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu „Menn þurfa að fara að átta sig á því“ Eriksen búinn að finna sér nýtt félag Chelsea ákært fyrir 74 brot í eigendatíð Abramovich Fullnaðarsigur Arnars Annað af fórnarlömbum Asencio fyrirgefur honum Vann Ólympíusilfur en ætlar núna að keppa á Steraleikunum Bognir en hvergi bangnir: „Ekki alltaf sólskin og sleikjóar“ Fertugur Fabianski beðinn um að mæta aftur Púaður á Prinsavöllum en fær góðar móttökur í Mílanó Yankees heiðruðu Charlie Kirk Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Ótrúleg breyting á skrautlegum stjóra: Misst fjörutíu kíló á hálfu ári Dagskráin í dag: Úrslitastund fyrir ÍA Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Ómar Ingi fór áfram hamförum Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Óðinn markahæstur á vellinum Rétthentu landsliðshornamennirnir í stuði Álftanes mætir stórliði Benfica Sjá meira