Lítt þekktur Tyrki mesti hugsuður heims 23. júní 2008 22:16 Fethullah Gülen.
Lítt þekktur tyrkneskur stjórnmálamaður og rithöfundur er mesti hugsuður heimsins um þessar mundir samkvæmt könnun sem breska tímaritið Prospect og hið bandaríska Foreign Policy stóðu fyrir á Netinu fyrir skemmstu. Úrslitin voru kunngjörð í dag og samkvæmt áliti netverja eru tíu gáfuðustu menn í heimi allir múslímar. Aðstandendur könnuninnar bjuggust eflaust við því að hópur nóbelsverðlaunahafa myndi raða sér í efstu sætin en það reyndist ekki að öllu leyti rétt. Samkvæmt breska blaðinu Guardian vann tyrkneski stjórnmálamaðurinnn Fethullah Gülen yfirburðasigur í kosningunni. Gülen hefur skrifað yfir 60 bækur og stofnað fjölmarga skóla sem leggja áherslu á íslam sem trú umburðarlyndis. Hann hefur verið lofaður fyrir það á Vesturlöndum að stuðla að samtölum trúarbragðanna og lýsti Osama bin Laden sem skrímsli eftir árásirnar 11. september 2001. Engu að síður telja aðstandendur könnunarinnar að hún hafi verið nýtt í pólitískum tilgangi í Tyrklandi til að afla Gülen og hugmyndum hans í heimalandinu fylgis. Bent er á að stærsta dagblað Tyrklands hafi sagt frá könnuninni og þá segir ritstjóri Prospect, David Goohart, að stuðningsmenn Gülens hafi haft könnunina að engu. Sigur Gülens endurspegli þá togstreitu sem sé í tyrknesku samfélagi milli veraldlegra og geistlegra afla, en Gülen er tengdur stjórnarflokknum AKP sem vill aukinn veg íslam í þjóðskipulaginu. Gülen er 67 og hefur síðustu tíu ár búið í Bandaríkjunum. Hann var ákærður fyrir að reyna að kollvarpa tyrkneska ríkinu árið 2006 en hreinsaður af þeim ásökunum síðar. Mohammad Yunus er heimsþekktur fyrir Grameen-bankann og hugmyndirnir um örlánin sem hafa hjálpað miklum fjölda fólks að komast úr fátækt til sjáfsbjargar.MYND/AP Sem fyrr segir eru tíu múslímar á toppi listans yfir mestu hugsuði heimsins um þessar mundir. Annað sætið skipar friðarverðlaunahafi Nóbels, Bangladessbúinn Muhammad Yunus, í fjórða sæti er tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk, sem hlaut fyrir nokkrum árum bókmenntaverðlaun Nóbels, og í því tíunda Shirin Ebadi, mannréttindalögfræðingurinn íranski. Á eftir henni í 11. og 12. sæti koma svo Bandaríkjamennirnir Noam Chomsky og Al Gore, friðarverðlaunahafi Nóbels. Í 14. sæti er rithöfundurinn Umberto Eco og þar á eftir kemur baráttukonan Ayaan Hirsi Ali. Garry Kasparov skipar 18. sætið og Íslandsvinurinn Slavoj Zizek, heimspekingur frá Slóveníu, það 25. Listann í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Fleiri fréttir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Sjá meira