Toppa fagnaðarlætin á morgun 17. júní? 26. ágúst 2008 19:19
Búist er við álíka fjölda fólks í miðborg Reykjavíkur þegar Ólympíufararnir verða hylltir og á 17. júní. Brýnt er fyrir fólki að nota almenningssamgöngur og leggja bílum sínum í útjaðri miðborgarinnar. Það verður mikið um dýrðir á morgun þegar íslenska íþróttafólkið verður hyllt við komuna til landsins. Ólympíufararnir munu keyra í opnum vagni um miðborgina og verða lúðrasveit og fánaberar með í för auk lögreglu. Risaskjár verður settur upp á Arnarhóli og eru allir hvattir til að fjölmenna og taka vel á móti afreksfólkinu. Breytingar hafa verið gerðar á akstursleiðinni, en upphaflega stóð til að hefja för Ólympíufaranna frá Hlemmi. Þess í stað leggur vagninn af stað klukkan sex frá Skólavörðuholti framan við Hallgrímskirkju þar sem ekið verður niður Skólavörðustíg og Bankastræti og þaðan að Arnarhóli þar sem athöfnin fer fram. Búist er við fjölmenni á morgun og er fólk beðið að haga ferðum sínum líkt og um hátíðarhöld á 17. júní væru að ræða. Lækjargötu við Geirsgötu verður lokað frá klukkan tíu í fyrramálið og Skólavörðustíg og Hverfisgötu við Ingólfsstræti verður lokað síðar um daginn. Er þeim tilmælum beint til fólks að nota almenningssamgöngur eða leggja bílum sínum í útjaðri miðborgarinnar eða leggja í bílastæðahúsum við Lindagötu, Hverfisgötu, Ráðhúsinu, Kolaportinu, gamla Stjörnubíósreitnum á Laugavegi og við Vesturgötu 7. Bílastæðahúsin verða opin til níu annað kvöld og verður frítt að leggja þar frá klukkan fimm til lokunar. Þá ber að varast sérstaklega að leggja í þau stæði sem liggja meðfram akstursleiðinni niður Skólavörðustíg og Bankastræti. Athöfnin verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 annað kvöld.
Mest lesið Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Innlent Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Innlent Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Innlent Fleiri fréttir „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Tekist á um þéttingu byggðar: „Þá getur þú bara flutt til Kaupmannahafnar“ Lögreglan leitar tveggja manna Frakkar viðurkenna Palestínu og stjórnarandstaðan á Alþingi mælist illa í nýrri könnun Óánægja með stjórnarandstöðuna eykst hressilega Amgen sver af sér njósnir um starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar Hundurinn gerði vart um mann sem stóð og starði inn Hægt nokkuð á virkninni frá því í gærmorgun Aron Can heill á húfi „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Launaði neitun á gistingu með löðrungi Óvinsældir eftir þinglok og meint leyndarmál frönsku forsetahjónanna Innan við þriðjungur andvígur olíuleit Sjá meira