Belgíski dómarinn ,,pirrandi og tilþrifamikill" Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. september 2008 11:23 Serge Gummienny gefur Stephen McManus rauða spjaldið í gær. Mynd/Anton
Blaðamaður hjá stærsta dagblaði Belgíu, Het Laatste Nieuws, skilur vel að Serge Gumienny hafi ekki heillað leikmenn og áhorfendur á leik Íslands og Skotlands í gær. Gumienny dæmdi leikinn í gær og var hreint skelfilegur. Hann hafði þó ekki úrslitaáhrif á leikinn þar sem hann dæmdi öll stærstu málin rétt - báðar vítaspyrnurnar og rauða spjaldið sem Stephen McManus fékk. Og ekki hallaði sérstaklega á íslenska liðið. En varla liðu nokkrar mínútur án þess að hann var búinn að gera eitthvað til að draga óþarfa athygli að sér. Undir lokin voru leikmenn orðnir líka ansi pirraðir á honum - það sást langar leiðir. Það kom umræddum blaðamanni ekki á óvart. „Gumienny er þekktur fyrir að vera með mjög mikið af leikrænum tilburðum. Svo virðist að hann vilji að allir taki eftir honum. Eins og hann sé á leiksviði." „Hann er frekar pirrandi týpa og ætli það sé ekki besta orðið til að lýsa honum - hann er pirrandi. Þessir tilburðir hjá honum eru að langmestu leyti alger óþarfi." Fyrir leikinn sögðu skoskir fjölmiðlar frá því að hann hefði verið kjörinn versti dómari síðustu leiktíðar hjá dagblaði í Belgíu. Viðmælandi Vísis kannaðist þó ekki við það né heldur tók hann undir það. „Hann er ekki sá versti sem við eigum en ekki sá besti heldur. Það kemur mér til dæmis ekkert sérstaklega á óvart að hann skuli vera FIFA-dómari." „Undanfarin ár hafa gæði dómara hér í Belgíu ekki verið mikil. Við eigum Frank De Bleeckere sem dæmdi í undanúrslitum á EM í sumar. Hann er mjög góður en við segjum oft að hann standi sig betur erlendis en heima." „Aðra dómara verðum við að sætta okkur við. En Gummienny hefur batnað. Hann er enn pirrandi en svo lengi sem hann stendur sig þokkalega að mestu leyti lætur maður sig hafa það. Við eigum ekki mikið betra."
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Sjá meira