Íslenski boltinn

Bjarnólfur ekki í áætlunum Loga

Bjarnólfur lék ellefu leiki með KR í Landsbankadeildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark.
Bjarnólfur lék ellefu leiki með KR í Landsbankadeildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark. Mynd/Danni Rú

Miðjumaðurinn Bjarnólfur Lárusson hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir KR. Logi Ólafsson, þjálfari liðsins, hefur tilkynnt Bjarnólfi að hann sé ekki í framtíðaráætlunum sínum og því geti hann leitað á önnur mið.

Bjarnólfur á enn tvö ár eftir af samningi sínum við KR og vill koma sínum málum á hreint í vinsemd við félagið. Hann kom til KR frá ÍBV eftir tímabilið 2004.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×