Íslenski boltinn

Baldur skrifar undir hjá Val: Langaði ekkert að fara í KR

Breki Logason skrifar
Baldur Ingimar Aðalsteinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við íslandsmeistara Vals.
Baldur Ingimar Aðalsteinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við íslandsmeistara Vals.

„Það lá alltaf fyrir að ég stefndi á að vera áfram hjá Val. Það er rökrétt framhald þar sem það hefur gengið vel undanfarið og það er gaman að vera í Val," segir Baldur Ingimar Aðalsteinsson sem í dag skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn.

Baldur segir að mörg lið í deildinni hafi haft samband við sig eftir sumarið þegar samningur hans við Valsmenn rann út. „Ég ræddi samt aldrei neitt við aðra þannig séð. Það var haft samband frá flestum liðum og það er alltaf gaman að vita af áhuga en það komst aldrei á neitt stig," segir Baldur greinilega mjög ánægður með nýja samninginn.

Aðspurður hvort honum hafi ekkert langað að fara í KR segir Baldur: „Nei. Ef ég hefði viljað það þá hefði ég farið. Ég vildi vera áfram í Val og verð þar áfram."

Valsmenn hafa fengið til liðs við sig tvo unga drengi Kristján Hauksson og Albert Ingason fyrir næsta sumar. Baldri lýst vel á þá og segir þá hafa sýnt að þeir séu hörku leikmenn. „Annars líst mér bara mjög vel á næsta sumar. Nýr völlur, evrópukeppni og tólf liða deild. Það er alltaf að verða meiri umfjöllun um íslensku deildina sem er mjög skemmtilegt og spennandi."

Baldur segir að honum hafi einnig staðið til boða að fara erlendis á reynslu. „Mér fannst enginn tilgangur með því. Mér finnst menn mikið vera að fara út bara til þess að fara út. En ef það kæmi upp eitthvað spennandi þá myndi maður auðvitað skoða það. Stefna ekki allir á atvinnumennsku?"

Baldur var ekki valinn í landsliðshóp Ólafs Jóhannessonar gegn Dönum og segist auðvitað vera nokkuð svekktur. „Ég skil samt alveg þjálfarann vel. Ég hef ekki spilað lengi og er ekki í neinu standi upp á það að gera. Maður verður bara að standa sig áfram vel og þá fær maður vonandi aftur tækifæri."

Baldur segir markmið næsta sumars skýr hjá Valsmönnum. „Það hlýtur náttúrulega að vera bara að verja titilinn og gera betur í evrópukeppninni. Mér finnst að öll íslensku liðin sem eru þar megi fara að spýta í lófana og ná betri úrslitum þar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×