Íslenski boltinn

Jónas Guðni kostaði KR sex milljónir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jónas Guðni í KR-heimilinu í gær.
Jónas Guðni í KR-heimilinu í gær. Mynd/E. Stefán

Samkvæmt traustum heimildum Vísis borgaði KR Keflavík tæpar sex milljónir króna fyrir Jónas Guðna Sævarsson sem samdi við félagið í gær.

Jónas Guðni átti ár eftir af samningi sínum við Keflavík og voru bæði Valur og FH einnig á höttunum eftir honum.

Hann er þar með orðinn einn af dýrustu leikmönnum landsins, ef ekki sá dýrasti í sögunni enda fáheyrt að slíkar upphæðir gangi félaga á milli fyrir leikmann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×