Íslenski boltinn

Valur yfir gegn Fylki á Laugardalsvellinum

Valur er 2-1 yfir í hálfleik gegn Fylki í Laugardalnum í fyrsta leik 11 umferðar Landsbankadeildar karla. Fylkismenn komust yfir á 16. mínútu þegar Peter Gravesen skoraði örugglega úr vítaspyrnu sem var dæmd á Kjartan Sturluson, markvörð Vals. Mínútu seinna jafnaði Daníel Hjaltason fyrir Valsmenn. Það var svo Helgi Sigurðsson sem kom Val yfir með marki á 35. mínútu eftir hornspyrnu.

Valsmenn hafa verið mun sterkari í leiknum og hafa meðal annars átt tvö skot í stöng.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×