Bítill hermir eftir Hilmari Jenssyni 23. maí 2007 09:00 Gítarleikarinn knái er einn af mörgum aðdáendum Sir Paul McCartney.
Umslag væntanlegrar plötu Sir Paul McCartney, Memory Almost Full, þykir sláandi líkt umslagi fyrstu sólóplötu gítarleikarans Hilmars Jenssonar, Dofinn, sem kom út árið 1995. Á báðum umslögunum er mynd af hægindastól í forgrunninum með hvítum bakgrunni og eru titlar platnanna jafnframt á svipuðum stað á umslögunum. Hilmar sagðist í samtali við Fréttablaðið ekki hafa séð umslag McCartney. Fannst honum ákaflega ólíklegt að Bítillinn fyrrverandi hefði stolið hugmyndinni frá honum. „Þetta er bara ein af þessum skemmtilegu tilviljunum,“ segir Hilmar, sem er aðdáandi McCartney eins og svo margir aðrir. „Ég hef nú ekki fylgst mikið með sólóferlinum hans hin síðari ár en ég hlustaði mikið á Bítlana og Wings og hans fyrstu sólóplötur þegar ég var pjakkur,“ segir hann. memory almost full Umslag nýjustu plötu Paul McCartney sem kemur út í byrjun júní. Að sögn Hilmars voru það hönnuðir umslagsins sem ákváðu að setja hægindastólinn í forgrunninn. „Þeir duttu niður á þetta eftir að þeir fengu titilinn á plötunni. Þeim fannst hann vera vísun í að það væri dofi í samfélaginu þar sem fólk væri kannski frekar að fókusera á veraldlega hluti heldur en eitthvað annað.“ dofinn Fyrsta sólóplata Hilmars Jenssonar kom út fyrir tólf árum. Hilmar, sem er upptekinn við að fylgja eftir nýjustu plötu Tyft, Meg Nem Sa, í Evrópu og Bandaríkjunum, segist enn eiga eftir að fara á tónleika með McCartney. „Ég hef ekki ennþá farið en það fer kannski hver að vera síðastur.“
Mest lesið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Svandís í ritstjórastól Menning Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Sjá meira