Íslenski boltinn

Valur vann Fylki í Árbænum

Tvö mörk Valsmanna á síðasta stundarfjórðungnum tryggðu liðinu frækinn 2-1 útisigur á Fylki í Landsbankadeild karla. Það var danski leikmaðurinn Rene Carlsen sem skoraði sigurmarkið á 83. mínútu en áður hafði Halldór Hilmisson komið Fylki yfir. Annar Dani í lið Vals, Dennis Bo Mortensen, hafði áður jafnað metin.

Mikið rok og mikil rigning einkenndu leikinn í Árbænum í dag en ekki er hægt að segja annað en að sigur Valsmanna hafi verið verðskuldaður. Þeir voru meira með boltann og áttu hættulegri færi heilt yfir og það var því nokkuð gegn því sem hafði verið í gangi í fyrri hálfleik þegar Halldór kom Fylki yfir á 48. mínútu.

Hafþór Ægir Vilhjálmsson kom inn á fyrir Val á 73. mínútu og aðeins tveimur mínútum síðar hafði hann náð að leggja upp jöfnunarmarkið sem Dennis Bo Mortensen. Það var síðan áðurnefndur Carlsen sem reyndist hetja Vals í dag.

Valsmenn hafa þar með hlotið 4 stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum í Landsbankadeildinni í sumar en liðið gerði jafntefli við Fram í fyrstu umferð deildarinnar. Fylkir er með 3 stig eftir sigur á Breiðablik í fyrstu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×