Lífið

Carmen Eelctra tekur heimilið fram yfir tjúttið

Mörgum þykir Carmen Electra rafmögnuð
Mörgum þykir Carmen Electra rafmögnuð MYND/Getty Images

Kynbomban Carmen Electra, sem hvað þekktust er fyrir hlutverk sitt í Strandvörðum, er nýskilin við Rockstardómarann Dave Navarro. Carmen segir að eftir að skilnaðinn hafi hún ekki haft gaman af því að fara á skemmtistaði. Henni finnist miklu skemmtilegra að vera heima í góðra vina hópi. Lífið snúist ekki lengur um að fara út á lífið.

Carmen og Dave voru gift í þrjú ár en leiðir þeirra skildu í júlí síðastliðnum, þegar Rockstar leitin stóð sem hæst. Skilnaðurinn gekk svo endanlega í gegn í síðasta mánuði. Tóku þau þátt í raunveruleikasjónvarpsþættinum Till Death Do Us Part sem sýndur var á tónistarstöðinni MTV en hann fjallaði um hjónaband þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.