Hvenær á að segja stopp? 7. febrúar 2007 05:00 Ég ekki frá því að það séu margir Íslendingar sem velta því fyrir sér nú hvað Baugsmálið sé búið að kosta okkur skattgreiðendur, nú þegar einn annar áfellisdómur á ríkissaksóknara liggur fyrir. Samt sem áður halda þeir ótrauðir áfram með tilheyrandi kostnaði og ætla sér að ákæra á ný. Þetta mál er faið að líta hálfspaugilega út fyrir íslenska ákæruvaldið og trúverðugleiki þess að minnka til muna. Ekki bætir það ofan á ótrúverðugleika þessa máls að kalla þarf til staðgengil ríkislögreglustjóra þar sem Haraldur Johannessen hefur verið dæmdur vanhæfur í þessu máli vegna ummæla sinna í fréttum. Og er það að ég held einsdæmi í íslenskri réttarsögu. En dýrt spaug hlýtur þetta samt að vera. Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs gaf það út í sjónvarpsviðtali nú ekki alls fyrir löngu að kostnaður Baugs væri vel kominn á annan milljarð. Ég spyr þá á móti hver er kostnaður íslenska ríkisins við að sækja þetta mál? Við vitum það sem eitthvað höfum fylgst með þessu máli að hann hlýtur að vera farinn að velta á hundruðum milljóna á þessum tveimur hringjum sem málinu hefur tekist að fara í kerfinu frá byrjun þess í ágúst 2002 þegar rannsókn hófst með öllum þeim látum. Ég spyr aftur, er það ekki réttur okkar skattgreiðenda og kjósenda að krefjast útskýringar á þessu máli öllu þá hvort sem er frá stjórnvöldum eða ríkislögreglustjóra. Þetta mál hefur hringsólað í íslensku réttarkerfi með dýrum aðgerðum sem hafa kostað alla málsaðila miklar fjárhæðir þá bæði okkur skattgreiðendur og Baugsmenn. Nú ættum við að krefjast skýringa þegar önnur mikilvægari mál sitja á hakanum s.s. mál gegn kynferðis- og ofbeldisafbrotamönnum. Núna þegar háværar umræður eru um kynferðisafbrotamenn í þjóðfélaginu myndi ég halda að þessum fjárhæðum væri betur varið í að rannsaka þau mál enda finnst mér að þess konar mál ættu brýnara erindi á borð ríkissaksóknara heldur en nornaveiðar gegn sérvöldum íslenskum viðskiptamönnum. Enda þykist ég nokkuð viss um að bæði Baugur og íslenska ríkið gætu varið sínum fjármunum í eitthvað betra en skrípaleiki í íslenskum dómssölum. Einnig er ég farinn að sjá að þetta mál eigi eftir að verða hitamál í komandi alþingiskosningum sem ég tel ekki vera rétt. Þetta á ekki að enda sem kosningamál stjórnmálaflokka heldur á að taka á því strax og segja stopp. Enda er löngu kominn tími á að hætta þessum leik sem þetta virðist vera komið í og fara að einbeita sér að öðrum hlutum. Nú þurfum við að forgangsraða málum rétt og vekja traust okkar á íslenska ákæruvaldinu á ný sem við virðumst hafa tapað undafarið. Höfundur er nemandi við Háskólann á Bifröst. Ég spyr aftur er það ekki réttur okkar skattgreiðenda og kjósenda að krefjast útskýringar á þessu máli öllu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar