Gætu átt rétt á allt að einni milljón króna 9. júní 2007 11:52
Íslenskar konur sem fengu sílikonfyllingar í brjóst frá framleiðandanum Dow Corporation fyrir árið 1992 eiga rétt á að lámarki um 78 þúsund krónur í bætur. 65 konur hafa lagt fram kröfu um skaðabætur frá fyrirtækinu. Fyrirtækið Dow Corporation hóf framleiðslu á sílikonfyllingum árið 1972. Rúmu tuttugu árum seinna eða árið 1994 kærði hópur bandarískra kvenna fyrirtækið fyrir að selja óáreiðanlega vöru en fyllingarnar áttu það til að rifna og sílikonið þar með leka út í líkama kvennanna. Konurnar urðu fyrir mismiklum skaða vegna þessa. Ári seinna lagði fyrirtækið upp laupana, hætti öllum viðskiptum með sílikon og stofnaði sjóð til að standa undir kröfugerðum kvenna sem hlotið hefðu skaða af fyllingunum en konurnar sem lagt hafa fram kröfu skipta þúsundum. Í sjóðnum eru nú um 400 milljónir dollara eða sem samsvarar tæpum 26 milljörðum íslenskra króna. Allar konur sem fengu sílikonfyllingar frá Dow Corporation árið 1992 eða fyrr eiga rétt á að sækja um bætur úr sjóðnum. Að því er fram kemur á vef skaðabótalögmannanna sem hafa yfirumsjón með kröfum úr sjóðnum eiga konur frá Íslandi einnig rétt á bótum úr sjóðnum. Á vefnum kemur fram að konur geti ákveðið að gangast undir sátt og þá á kona sem fengið hefur sílikonfyllingu frá fyrirtækinu á þessu tímabili rétt á tæpum 80 þúsund krónum úr sjóðnum. Hafi konan hins vegar látið fjarlægja sílikonfyllinguna á hún rétt á tæpum 195 þúsund krónum úr sjóðnum. Ef komið hefur í ljós að fyllingin hafi verið rifin á konan rétt á tæpri einni milljón króna úr sjóðnum. Telji konan sig hins vegar hafa orðið fyrir einhverjum skaða af völdum fyllingarinnar þá getur hún farið fram á hærri upphæðir með því að höfða mál. 65 íslenskar konur hafa lagt fram kröfu í sjóðinn og munu þær hittast á Hóteli Reykjavík Centrum þann 12. júní. Á fundinn mun einnig mæta Melissa Ferri, lögfræðingur á vegum sjóðsins. Heimasíða sjóðsins
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Sjá meira