Borga sig ekki upp á 25 árum 9. júní 2007 08:00
Tap Orkuveitu Reykjavíkur á þeim 25 árum sem fyrirtækið hefur samið um að afhenda Norðuráli 100 megavött af raforku vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík nemur um 840 milljónum að núvirði, samkvæmt forsendum sem Orkuveitan hefur upplýst um. Í því felst að virkjanirnar yrðu niðurgreiddar fyrir utan þær 840 milljónir sem eftir standa. Líklegt er að raforkusalan borgi virkjanaframkvæmdirnar, sem kosta á milli fjórtán og fimmtán milljarða, upp á um 30 árum samkvæmt fyrrnefndum forsendum. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu á fimmtudag er verð á raforku til Norðuráls um 2,1 króna á kílóvattstund. Það staðfesti Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar. Það er verð sem tekið var mið af við samningsgerðina en raforkuverðið hangir saman við heimsmarkaðsverð á áli og gengi dollars og er því háð markaðsaðstæðum hverju sinni. Óvissuþættir eru nokkrir en samkvæmt upplýsingum frá Önnu Skúladóttur, fjármálastjóra Orkuveitunnar, er gert ráð fyrir því að arðsemiskrafan vegna verkefnisins sé að lágmarki tíu prósent. Gert er ráð fyrir því að rekstrarkostnaður af fjárfestingu verði um 1,5 prósent en heildartekjur um 41,5 milljarður. Arðsemiskrafan er hærra lagi sé mið tekið af algengri arðsemiskröfu í áliðnaði, samkvæmt upplýsingum frá CRU group í London, sem sérhæfir sig í rannsóknum og ráðgjöf á áliðnaðinum í heiminum. Meðalarðsemiskrafan á alþjóðlegum markaði er tæplega átta prósent. Fastlega má búast við því að virkjanirnar verði notaðar áfram að 25 árum liðnum og samningar um frekari orkusölu endurnýjaðir. Ekki er tekið tillit hliðaráhrifa út frá þessum forsendum en forsvarsmenn Orkuveitunnar hafa haldið því fram að með virkjunum sé hægt að tryggja ódýrt heitt vatn fyrir almenning, og með virkjunum sparist þannig umtalsverðir fjármunir. - mh
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Sjá meira