Ó, þú skrínlagða heimska ... 23. mars 2007 05:00 Aðdragandi íbúakosningar um risaálver í Hafnarfirði við hlið þess gamla hefur afhjúpað enn frekar en orðið var brotalamirnar í Samfylkingunni sem stjórnmálaflokki. Flokkurinn treystir sér ekki til að taka opinbera afstöðu til málsins eða eins og forseti bæjarstjórnarinnar segir í Fréttablaðinu 21. mars: „Við viljum gefa bæjarbúum frelsi til að nýta sér atkvæðisréttinn án þess að þurfa að lúta leiðsögn félagsins eða hinna kjörnu fulltrúa.“ Menn hljóta að spyrja til hvers sé flokkur og forysta sem ekki hefur skoðun á svo afdrifaríkri ákvörðun fyrir sitt sveitarfélag? Slík „leiðsögn“ þyrfti að sjálfsögðu ekki að koma í veg fyrir skoðanakönnun um málið meðal íbúanna en við blasir að hún er ekki annað en illa dulbúinn feluleikur. Lúðvík Geirsson, Gunnar Svavarsson og Tryggvi Harðarson beita sér leynt og ljóst fyrir fabrikkunni, sá síðastnefndi með þeim snilldarrökum að jafnt andstæðingar hennar sem fylgjendur geti sagt já í mánaðarlokin. Ekki tekur betra við þegar formaður Samfylkingarinnar reynir í Morgunblaðsgrein 21. mars að varpa ljósi á afstöðu flokks síns. Einnig þar er enga skoðun að finna þrátt fyrir Fagra Ísland og aðra sýndarafstöðu til stóriðjumála. Fari svo að Alcan nái að beygja Hafnfirðinga undir sinn veldissprota með blíðmælgi og hótunum lofar Ingibjörg formaður því að greiða úr því sem á vantar með „viðræðum milli allra þeirra aðila sem eiga þátt í undirbúningi stækkunar álversins í Straumsvík“. Það er ekki amalegt fyrir felumennina heimafyrir að eiga von á slíkri ljósmóður til að allt komist á koppinn í nafni lýðræðisins. Formaður Samfylkingarinnar og oddvitinn í Hafnarfirði opinbera í ofangreindum pistlum hvernig flokkur þeirra leggst nú á eitt með Alcan að ná sér þóknanlegri niðurstöðu. Við lesturinn rifjuðust upp ljóðlínur úr Landsýn eftir Stein Steinarr. Hafnfirðingar hafa brátt í hendi sér hvort niðurlagið verður að hætti skáldsins. Höfundur er líffræðingur og fyrrverandi ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Sjá meira
Aðdragandi íbúakosningar um risaálver í Hafnarfirði við hlið þess gamla hefur afhjúpað enn frekar en orðið var brotalamirnar í Samfylkingunni sem stjórnmálaflokki. Flokkurinn treystir sér ekki til að taka opinbera afstöðu til málsins eða eins og forseti bæjarstjórnarinnar segir í Fréttablaðinu 21. mars: „Við viljum gefa bæjarbúum frelsi til að nýta sér atkvæðisréttinn án þess að þurfa að lúta leiðsögn félagsins eða hinna kjörnu fulltrúa.“ Menn hljóta að spyrja til hvers sé flokkur og forysta sem ekki hefur skoðun á svo afdrifaríkri ákvörðun fyrir sitt sveitarfélag? Slík „leiðsögn“ þyrfti að sjálfsögðu ekki að koma í veg fyrir skoðanakönnun um málið meðal íbúanna en við blasir að hún er ekki annað en illa dulbúinn feluleikur. Lúðvík Geirsson, Gunnar Svavarsson og Tryggvi Harðarson beita sér leynt og ljóst fyrir fabrikkunni, sá síðastnefndi með þeim snilldarrökum að jafnt andstæðingar hennar sem fylgjendur geti sagt já í mánaðarlokin. Ekki tekur betra við þegar formaður Samfylkingarinnar reynir í Morgunblaðsgrein 21. mars að varpa ljósi á afstöðu flokks síns. Einnig þar er enga skoðun að finna þrátt fyrir Fagra Ísland og aðra sýndarafstöðu til stóriðjumála. Fari svo að Alcan nái að beygja Hafnfirðinga undir sinn veldissprota með blíðmælgi og hótunum lofar Ingibjörg formaður því að greiða úr því sem á vantar með „viðræðum milli allra þeirra aðila sem eiga þátt í undirbúningi stækkunar álversins í Straumsvík“. Það er ekki amalegt fyrir felumennina heimafyrir að eiga von á slíkri ljósmóður til að allt komist á koppinn í nafni lýðræðisins. Formaður Samfylkingarinnar og oddvitinn í Hafnarfirði opinbera í ofangreindum pistlum hvernig flokkur þeirra leggst nú á eitt með Alcan að ná sér þóknanlegri niðurstöðu. Við lesturinn rifjuðust upp ljóðlínur úr Landsýn eftir Stein Steinarr. Hafnfirðingar hafa brátt í hendi sér hvort niðurlagið verður að hætti skáldsins. Höfundur er líffræðingur og fyrrverandi ráðherra.