Fjölnir og ÍBH Landsmótsmeistarar í körfubolta 8. júlí 2007 18:45 Fjölnismenn sigruðu í körfuboltakeppninni í karlaflokki á 25. Landsmóti UMFÍ Mynd/Rósa
Karlalið Fjölnis og kvennalið ÍBH urðu í dag Landsmótsmeistarar í körfubolta í fyrsta skipti eftir sigra í úrslitaleikjum gegn liðum Keflavíkur. Kvennalið ÍBH vann öruggan sigur í sínum úrslitaleik, en framlengja þurfti karlaleikinn. Kvennalið ÍBH var skipað leikmönnum Hauka vann öruggan 47-21 sigur á Keflavík eftir að hafa náð 35-8 forystu um miðjan þriðja leikhlutann. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 15 stig fyrir lið ÍBH og Unnur Tara Jónsdóttir skoraði 13 stig. Svava Ósk Stefánsdóttir skoraði mest Keflavíkurstúlkna, 6 stig. Mikil spenna var í karlaleiknum þar sem Fjölnir hafði frumkvæðið framan af leik en Keflavík hafði yfir í hálfleik 22-18. Keflavík hafði enn yfir fyrir lokaleikhlutann 26-24, en í fjórða leikhluta lifnaði heldur betur yfir sóknarleik beggja liða. Fjölnismenn höfðu þriggja stiga forystu þegar skammt lifði leiks, en Magnús Þór Gunnarsson tryggði Keflvíkingum framlengingu með því að setja niður þrjú víti eftir að brotið hafði verið á honum í þriggja stiga skoti. Í framlengingunni höfðu svo Fjölnismenn betur þrátt fyrir skotsýningu Magnúsar Gunnarssonar, sem skoraði 14 af 16 stigum sínum í leiknum í fjórða leikhluta og framlengingu. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 18 stig og gaf 7 stoðsendingar fyrir Fjölni í úrslitaleiknum. Hjá Keflavík skoraði Magnús 16 stig og miðherjinn Sigurður Þorsteinsson skoraði 13 stig, hirti 9 fráköst og varði 3 skot. Lokaröð hjá körlum á Landsmótinu 2007: 1. sæti Fjölnir 2. sæti Keflavík 3. sæti ÍBR 4. sæti ÍBA 5. sæti UMFG 6. sæti Stjarnan 7. sæti UMSK 8. sæti HSK 9. sæti UMSB 10.sæti HSH 11. sæti ÍBH 12. sæti UÍALokaröð hjá konum á Landsmótinu 2007: 1. sæti ÍBH 2. sæti Keflavík 3. sæti ÍBR 4. sæti HSK 5. sæti UMSB 6. sæti Fjölnir 7. sæti UMSK
Dominos-deild karla Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Tryggvi og félagar eru áfram með fullt hús í Evrópubikarnum Abby með sigurkörfuna 0,8 sekúndum fyrir leikslok Áfall Njarðvíkur fyrir grannaslag kvöldsins Fyrsta Evróputap Stólanna í Síkinu Fjórði sigur Haukakvenna í röð KR - Valur 66-77 | Valur komst upp fyrir KR eftir sigur í rimmu liðanna Martin stoðsendingahæstur í Evrópusigri Tímabilið búið hjá Butler Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Bað um að fara frá Keflavík Risaleikir í undanúrslitum bikarsins Justin James aftur á Álftanesið Blóðugt tap gegn Börsungum Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Martin framlagshæstur í sigri Alba Berlin Elvar öflugur í mikilvægum sigri Segir ekkert til í því að Justin James sé á leið á Krókinn Uppgjörið: Njarðvík - ÍA 84-71| Langþráður sigur Njarðvíkur skilur ÍA eftir í slæmum málum Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa „Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá“ „Hættum að spila okkar leik“ Uppgjörið: Þór Þ. - KR 123-126 | Endurkoma, framlenging og dramatík í Þorlákshöfn „Var í raun bara verið að yfirspila okkur“ Bragi: Er að þroskast mikið sem leikmaður Uppgjör: Ármann - Valur 94-77 | Frábær sigur Ármanns á lánlausum Valsmönnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 116-98 | Keflvíkingar kafsigldir í Garðabæ Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Sektaðir um hálfa milljón: Kane og þjálfarar þriggja liða borga mest Sjá meira