Var aldrei ætlunin að slá mann í andlitið 13. júní 2007 06:45 Ólafur Ragnarsson, dómari leiks FH og Fylkis, gaf þeim Tryggva Guðmundssyni og Val Fannari Gíslasyni rautt spjald í leiknum. fréttablaðið/vilhelm
Aganefnd KSÍ felldi í gær þann dóm að þeir Tryggvi Guðmundsson úr FH og Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason skyldu fá eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem þeir fengu í leik liðanna um helgina. Tryggvi og Valur Fannar áttu fremur hörð samskipti sem lauk með því að báðir féllu þeir í jörðina. Þeir höfðu ekki frétt af úrskurðinum þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða og voru báðir vitaskuld fegnir því að fá ekki tveggja leikja bann. Valur Fannar gekkst við því að hafa slegið Tryggva í andlitið. „Það var þó aldrei ætlunin að kýla neinn þó það hafi litið þannig út. Það er aldrei vilji manns að lemja annan leikmann. Maður vill oft óvart fara upp með höndina en ásetningur var aldrei til staðar." Hann efast líka um að það hafi verið ásetningur Tryggva að ýta við sér. „Það fer vel á milli okkar og verður enginn eftirmáli af þessu. En ég tek þetta á mig." Tryggvi sagðist hafa óttast að fá tveggja leikja bann en fannst þó að Valur Fannar hafi sloppið vel með sína refsingu. „Ég vil meina að það sé munur á því að ýta og slá. Ég ýtti og hann sló. Að sama skapi er svo sem ágætt fyrir báða aðila að fá eins leiks bann. Þarna var um að ræða tvo reynslumikla leikmenn sem misstu sig í ruglinu. Slíkt á auðvitað ekki að gerast." Viðbrögð þeirra beggja virtust eilítið ýkt í sjónvarpsupptökum af atvikinu en Tryggvi segir fyrir sitt leiti að um engan leikaraskap hefði verið að ræða. „Þegar ég sá þetta í sjónvarpinu hugsaði með mér að þetta hafi litið út eins og dýfa. En málið er nú það að ég hef mjög sjaldan verið sleginn í andlitið, hvorki innan vallar né utan. Ég fékk þarna einn á trantinn og krossbrá við það. Viðbrögðin voru eftir því." Hann segir þó að Valur Fannar hafi sýnt ákveðin klókindi við þessar aðstæður. „Hann vissi að hann var búinn að koma sér í klípu og lét sig því detta í leiðinni."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið UFC-bardagakappi lést í svefni Sport Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Fótbolti Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Viktor Gísli framlengir við Barcelona Handbolti Williams-systurnar gera aðra tilraun að endurkomu Sport Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Fótbolti „Vorum miklu betri allan tímann“ Fótbolti Mun Mount verða lausnin fyrir Manchester United? Fótbolti Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Golf FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Fótbolti Fleiri fréttir Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Grótta sótti þrjú stig á Ísafjörð og vandræði Vestra halda áfram Heldur brasið áfram á Brazell í Bestu deildinni? Dómararnir ástæðan fyrir því að ÍA vann ekki „Fæ einhverja skepnu á blindu hliðina“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin á Skaganum Uppgjörið: ÍA - Víkingur 2-2 | Tvö rauð og bæði ósátt heim Komnir með fleiri stig en í fyrra og eiga enn tíu leiki eftir Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum „Þetta er kvikindisleg spurning“ Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Kristján Flóki fékk tveggja leikja bann fyrir að traðka á Ívari Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Uppgjörið: Fram - Valur 4-1 | Valur situr sem fastast á botninum Uppgjörið: ÍBV - FH 2-2 | Eyjakonur sóttu stig á lokamínútunni Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 2-0 | Ólöf Sigríður á skotskónum og víti forgörðum Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík „Við þurfum að vera klárir í hvað sem er“ „Er hægt að bjóða upp á þetta ár eftir ár?“ „Ég þarf bara að teipa þetta aðeins“ „Ekki það sem við lögðum upp með“ Sara Björk leitar enn fyrsta sigursins Njarðvík marði botnliðið Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík/Njarðvík 0-0 | Fer seint í sögubækurnar Sjá meira