Teitur orðlaus yfir lánleysi sinna manna 14. júní 2007 22:22 Mynd/Hörður "
Það er ennþá einu sinni helvíti súrt að tapa þessu því mér fannst við eiga svo mikið af tækifærum í fyrri hálfleiknum - algjörum dauðafærum - að það er alveg ferlega súrt að tapa þessu," sagði Teitur Þórðarson í viðtali á Sýn eftir tap hans manna í KR gegn FH í kvöld. "Þetta er búið að elta okkur svolítið og lítið við þessu að gera. Mér finnst við vera að spila ágætlega. Fyrri hálfleikurinn var opinn og skemmtilegur af beggja hálfu en sá síðari nokkuð lokaður. Við erum í dauðafærum alveg inni á markteig og náum ekki að nýta þau. Ég vil kalla það óheppni, en eitthvað af því verður líklega að rekja til getu manna," sagði Teitur. KR-ingar hafa nú aðeins hlotið eitt stig eftir sex umferðir og þriðjungur Íslandsmótsins þegar að baki. Teitur var næst spurður hvort hann óttaðist aðgerðir stjórnar KR í ljósi lélegs gengis hjá liðinu. "Það er ekki mitt að gera breytingar. Ef KR vill gera breytingar þá er það þeirra að gera það. Ég reyni bara að vinna það starf sem ég var fenginn hingað til að vinna. Frumkvæðið kemur frá klúbbnum," sagði Teitur og var því næst spurður út í andann í herbúðum KR. "Stemmingin hefur alltaf verið góð hjá strákunum og þeim sem eru hérna að standa í þessu, en það er auðvitað helvíti sárt að tapa alltaf þessum leikjum. Við erum að vinna vel og spila ágætlega, en það eru smáatriði sem gera það að verkum að okkur tekst ekki að klára þetta. Ég hef verið í aðstöðu áður þar sem maður hefur verið í basli með að klára leiki og það getur verið fljótt að snúast við ef maður vinnur einn leik," sagði Teitur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Fleiri fréttir Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Sjá meira