Innlent

Tíð lundabagga og hrútspunga gengur í garð

MYND/Rósa Jóhannsdóttir
Bóndadagurinn er í dag en hann markar upphaf þorrans og þeirra fjölmörgu þorrablóta sem landinn sækir. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að áætlað sé að matgæðingar innbyrði um sextíu tonn af súrmeti á næstu vikum en þá er ótalinn ferskur og reyktur þorramatur eins hangkjöt. Það má því væntanlega búast við löngum röðum í verslunum landsins í dag þar sem landinn nælir sér í lundabagga, hrútspunga og aðrar kræsingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×