Íslenski boltinn

Vissi ekki að hann hefði skorað

Paulo José de Oliveiera, brasilíski framherjinn hjá Häcken sem skoraði sigurmarkið gegn KR í Evrópuleiknum á fimmtudaginn, missti meðvitund í rúma mínútu þegar hann lenti í samstuði við markvörð KR. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús.



Paulinho fór ekki með félögum sínum til Svíþjóðar heldur varð eftir á slysadeild Háskólasjúkrahússins. Hann er útskrifaður af sjúkrahúsinu en samkvæmt heimasíðu Häcken er ljóst að Paulinho spilar ekki með liðinu í næstu leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×