Lítill áhugi hjá feitustu bitunum 12. júní 2007 06:15 Það er óneitanlega farið að hitna undir Teiti Þórðarsyni. fréttablaðið//valli
Teitur Þórðarson situr á heitasta stólnum þegar staðan í Landsbankadeild karla er skoðuð. Vesturbæjarrisinn blundar vært á botni deildarinnar og háværar raddir heyrast nú um að nóg sé komið. Teitur er samningsbundinn KR til 2010 en óneitanlega er Teitur farinn að finna fyrir óánægju á meðal stuðningsmanna KR sem vænta meira af sínu liði. Fréttablaðið kannaði hug fjögurra þjálfara sem liggja beinast við því að taka við hinni hratt sökkvandi skútu ef stjórn KR ákveður að skipta um mann í brúnni. Atli Eðvaldsson stýrði KR til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins í háa herrans tíð árið 1999 áður en hann tók við íslenska landsliðinu. „Ég hef hug á að fara aftur út í þjálfun en ég held að það séu litlir möguleikar á því að ég færi til KR, í það minnsta meðan núverandi stjórn er við lýði. Auk þess held ég að KR muni halda í Teit áfram," sagði Atli við Fréttablaðið í gær. Pétur Pétursson lék um árabil með KR-ingum og þjálfaði liðið árið 2000. Hann gerði liðið að Íslandsmeisturum það ár. „Teitur er þjálfari KR og mér finnst að það eigi að styðja við bakið á honum, annað hef ég ekki um málið að segja," sagði Pétur sem nú þjálfar 2. flokk Breiðabliks. Logi Ólafsson hefur ekki þjálfað félagslið eftir að hann hætti með íslenska landsliðið á síðasta ári en hann hefur meðal annars þjálfað Víking, sem hann gerði að Íslandsmeisturum, ÍA og FH. „Ég ákvað að þjálfa ekki félagslið á þessu ári og hef ekkert velt því fyrir mér. Ef KR hefur samband hef ég ekkert velt því fyrir mér hverju ég myndi svara," sagði Logi. Heimir Guðjónsson er uppalinn hjá KR en er í dag aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar hjá FH. „Ef KR myndi hringja í dag myndi ég segja nei af því ég er að þjálfa hjá FH," sagði Heimir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Jorge Costa látinn Fótbolti Fleiri fréttir „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Sjá meira