Glitnir er næststærsti miðlari Norðurlanda 9. maí 2007 06:15 Efsta lagið hjá Glitni Þorsteinn M. Jónsson stjórnarformaður ásamt Bjarna Ármannssyni, fráfarandi forstjóra, og Lárusi Welding, sem tók við starfanum þegar tilkynnt var um breytinguna 30. apríl sl. MYND/Hörður Sveinsson
Óli Kristján Ármannsson skrifar Glitnir er annar stærsti miðlarinn á norrænum verðbréfamarkaði á fyrsta fjórðungi ársins eftir kaupin á finnska fyrirtækinu FIM Group, samkvæmt tölum sem OMX-kauphöllin og Oslóarkauphöllin (Oslo Børs) hafa birt. Þegar horft er til veltu hlutabréfa hefur markaðshlutdeild Glitnis aukist úr 0,8 prósentum á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs í 6,05 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem er hátt í áttföldun. Mikinn vöxt Glitnis á norrænum verðbréfamarkaði má bæði rekja til innri vaxtar og kaupa á fyrirtækjunum Norse Securities, Fischer Partners og FIM Group, en yfirtökutilboði í FIM Group lýkur núna 16. maí. Samkvæmt upplýsingum frá Glitni nemur samanlögð markaðshlutdeild Glitnis og FIM á fyrsta fjórðungi ársins 26 prósentum hér á landi, 6,66 prósentum í Finnlandi, 6,28 prósentum í Svíþjóð, 5,63 prósentum í Noregi og 3,24 prósentum í Danmörku. Frank Ove Reite, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, segir sterka stöðu á verðbréfamarkaði efla bankann sem leiðandi fjármálafyrirtæki og leggja grunn að frekari vexti og arðsemi. „Fyrirtækjakaupin hafa aukið við vöruframboð og auðveldað aðgang viðskiptavina Glitnis inn á norræna markaðinn auk þess að opna leið inn á nýja og ört vaxandi markaði. Eftir kaupin á FIM mun Glitnir vaxa og eflast enn frekar á sviði verðbréfaviðskipta og fyrirtækjaráðgjafar,“ segir hann og bendir á að nú séu 55 fyrirtækjaráðgjafar á vegum Glitnis í fimm löndum, sem efli mjög stöðu bankans á þeim vettvangi innan Norðurlandanna. „Sérfræðiþekking FIM á nýmörkuðum og sterk staða Glitnis á norrænum fjármálamarkaði mun skapa fjölda nýrra tækifæra fyrir bankann,“ segir hann og bætir við að stefna bankans sé að vera áfram í forystusveit veltumestu fjármálafyrirtækja á norræna markaðnum. Töluverður gangur hefur verið í norrænum kauphöllum að undanförnu. Þannig voru í síðasta mánuði slegin nokkur veltumet í OMX-kauphöllunum. Veltumesti dagurinn í sögu kauphallanna var 26. apríl. Þá nam veltan 795,5 milljörðum íslenskra króna, en fyrra met var af fyrsta fjórðungi þessa árs, síðan 28. febrúar þegar veltan nam 758,6 milljörðum. Fjöldi viðskipta hefur að sama skapi aukist en á meðaldegi í síðasta mánuði fóru fram um 172 þúsund viðskipti, miðað við 143 þúsund síðustu tólf mánuðina á undan. Frank Reite segir horfur á því að viðskipti haldi áfram að vera lífleg á markaðnum. „Og það kemur sér vel fyrir okkur,“ segir hann glaðbeittur.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira