Núna er orðið gaman að mótinu 21. júlí 2007 01:00 Atli Sveinn skallar boltann í leiknum gegn Fram, þar sem hann átti sannkallaðan stórleik. fréttablaðið/anton
Atli Sveinn Þórarinsson batt vörn Vals vel saman í 2-0 sigurleiknum gegn Fram í vikunni. Með stigunum þremur munar aðeins tveimur stigum á Val og FH á toppi deildarinnar. „Það var ánægjulegast að halda hreinu. Það er alltaf mikilvægt og gerir leikinn vitaskuld auðveldari. Það var kominn tími til að halda hreinu aftur, það var orðið of langt síðan síðast," sagði Atli en þetta var í annað skipti í sumar sem Valur heldur marki sínu hreinu. Hitt skiptið var í markalausum leik gegn Blikum 28. maí. Atli hefur náð vel saman með hinum skoska Barry Smith í hjarta Valsvarnarinnar. „Það gengur mjög vel hjá okkur en það má ekki gleyma að við erum langt frá því að vera tveir í þessu. Við Barry tölum mikið saman, alltaf á ensku, en ég er fyrsti maðurinn til að viðurkenna að þetta er ekki allt eftir orðabókinni hjá mér. Þetta er svona íslensk-enska. Ég tala stundum í jördum en ekki metrum en yfirleitt gengur þetta klakklaust fyrir sig. Það næst varla orð á íslensku upp úr Barry enn þá," sagði Atli brosmildur. Atli bendir á að Valur geti skákað FH í næstu umferð og komist á toppinn, í það minnsta í nokkra daga. „Við eigum leik nokkuð á undan FH og það væri gaman að komast á toppinn. Það er ekki langt síðan að tilkynnt var að þeir hefðu verið á toppnum í mörg ár. Það er þó bara ellefta umferð og mótið vinnst ekki þar. Við eigum erfiðan leik gegn Fylki en við ætlum okkur auðvitað efsta sætið," sagði Atli. FH hefur verið á toppi deildarinnar samfleytt í 54 umferðir. f f f Atli segir að samhugur ríki á Hlíðarenda um að velta FH-veldinu af stalli. „Já að sjálfsögðu, það kemur ekkert annað til greina. Við beitum samt bara alltaf gamla góða lögmálinu og tökum einn leik fyrir í einu. Mönnum hættir oft til að rýna of mikið í töfluna á þessu stigi. Núna er þetta bara í okkar höndum, það er ekkert flóknara en það. Það er vissulega bara jákvætt," sagði Atli Sveinn sem er á því að leikmannahópur Vals sé svipaður og hópur FH-inga. „Leikmannahópurinn okkar er sterkur og breiður. Við erum til dæmis að fá Bjarna Ólaf inn en að missa Hafþór Ægi í meiðsli er slæmt. Síðustu sex, átta leikina á tveimur síðustu tímabilum höfum við rétt átt í sextán manna hóp en núna erum við með miklu fleiri menn. Það er gulls ígildi. Þetta þýðir meiri samkeppni og það er engum hollt að vera öruggur um sæti í byrjunarliðinu. Hjá FH hefur komið maður í manns stað undanfarin ár og árangurinn er eftir því," sagði Atli. Það er enn mikið eftir af mótinu og eitt skref í einu er liður í uppbyggingunni sem nú á sér stað á Hlíðarenda. „Núna erum við með 21 stig og við verðum bara að sjá til, vonandi verða þau orðin 24 eftir næsta leik. Einhvern tímann voru Valsarar með 21 stig eftir fyrri umferðina en féllu svo. Það er ekkert öruggt í þessu móti," sagði Atli Sveinn Þórarinsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Handbolti Hver er staðan og hvað tekur við? Handbolti Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Rýr svör um stóru mistökin sem hefðu getað haft áhrif á Ísland Handbolti Fleiri fréttir Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Sjá meira