Flugbraut verður opnuð í Keflavík 15. desember 2006 06:30 Sturla Böðvarsson. Í máli samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar, kom fram að flugbrautin 07/25 yrði opnuð á Keflavíkurflugvelli þegar sambærilegri braut yrði lokað í Reykjavík.
keflavíkurflugvöllur Öryggismál Keflavíkurflugvallar voru í brennidepli á fundi Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, á Hótel Nordica í gær. Á fundinum kom fram að unnið yrði að því í náinni framtíð að opna aftur flugbrautina 07/25 í tengslum við það þegar sambærilegri braut á Reykjavíkurflugvelli yrði lokað. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, varaformaður FÍA, segir að eftir fundinn hafi ríkt mikil ánægja með þessi orð samgönguráðherra en hann lýsti yfir að hann hygðist vinna að því í náinni framtíð að opna aftur þessa flugbraut. „Við höfum lagt áherslu á að ein svona braut sé til staðar á suðvestur-horninu, sérstaklega fyrir innanlandsflugið," segir Jóhannes. Kostnaður við opnun flugbrautarinnar er talinn nema 200-250 milljónum króna. Jóhannes segir að yfirlag brautarinnar sé gott og brautin í rauninni tilbúin en kostnaðurinn tengist fyrst og fremst aðflugsbúnaði og raflögnum. Þetta hafi setið á hakanum þegar raflagnir voru endurnýjaðar á vellinum fyrir nokkrum árum. Á fundinum kom fram að öryggismál yrðu í góðu lagi þó að varnarliðið hefði farið og vel yrði hugsað um alla flugrekstrarlega þætti, til dæmis hreinsun brauta, mönnun og tækjabúnað hjá slökkviliðinu. Ekki yrði slegið af kröfum eða öryggisstöðlum. Þá kom fram í máli samgönguráðherra að völlurinn færi undir samgönguráðuneytið en ekki hefði verið hvenær það yrði. „Eftir þessa breytingu er hægt að hugsa flugvellina í einni heild og undir einum hatti," segir Jóhannes. „Það er óásættanlegt að dregið sé úr kröfum og staðlar lækkaðir við þær breytingar sem nú eru á Keflavíkurflugvelli. Borgaralegt farþegaflug á ekki að búa við lakari skilyrði en hernaðarflugið áður og má þá eins og áður benda á staðsetningu Keflavíkurflugvallar á miðju Atlantshafinu langt frá öðrum vara- og neyðarflugvöllum," segir hann. Flugstöðin hefur verið stækkuð fyrir milljarða króna upp á síðkastið. „Þessar framkvæmdir mega samt ekki verða til þess að ekki fáist nægjanlegt fjármagn til að halda uppi hæsta öryggisstaðli við rekstur og þjónustu við flugumferð við jafn krefjandi aðstæður," segir Jóhannes. Fundarmenn voru ánægðir með þau orð samgönguráðherra að flugbrautin 07/25 yrði opnuð aftur. „Það er óásættanlegt að dregið sé úr kröfum og staðlar lækkaðir við þær breytingar sem nú eru á Keflavíkurflugvelli,“ segir Jóhannes B. Guðmundsson, varaformaður FÍA. MYND/Anton .
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira