Yfir tvö hundruð látnir eftir árásir í Bagdad 24. nóvember 2006 09:20 Ættingjar og vinir nokkurra fórnarlamba árásanna í gær MYND/AP
Tala látinna eftir hrinu árása í Sadr-hverfi í Bagdad í gær er nú komin upp í 202 og þá eru um 250 sárir. Árásin er sú mannskæðasta frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í landið ásamt bandamönnum sínum í mars árið 2003. Bifreiðum með mörg hundruð kílóum af sprengiefni var lagt við fjölfarið markaðstorg í hverfinu og þær sprengdar í loft upp og þegar fólk flýði af vettvangi í ofboði var sprengjum látið rigna yfir það. Útgöngubanni hefur verið komið á í Bagdad um óákveðinn tíma og þá hefur flugvellinum í borginni verið lokað.Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, kom fram í íröksku sjónvarpi í gær og hvatti til stillingar í landinu um leið og hann fordæmdi árásir trúarhópa sem miðuðu að því að sundra þjóðinni. Þá hvatti áhrifamesti sjíaklerkur landsins, Ali al-Sistani, menn til að grípa ekki til hefnda, en Sadr-hverfi er fátækrahverfi sjía. Bæði stjórnvöld í Washington og á Bretlandi hafa fordæmt árásirnar.AP-fréttastofan segir frá því að reiðir íbúar í Sadr-hverfi og herskáir sjíar hafi safnast saman úti á götum eftir árásirnar og hrópað slagorð gegn súnníum og ljóst þykir að spennan milli trúarhópanna tveggja hefur síður en svo minnkað. Ekkert lát virðist á blóðbaðinu í Írak því á miðvikudag greindu Sameinuðu þjóðirnar frá því að aldrei hefðu fleiri almennir borgarar látist í einum mánuði en í október, eða 3700.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Sjá meira