Innlent

Mikil gremja vegna búsetumála aldraðra

Mikil gremja ríkir meðal aðstandenda aldraðra og alzheimers-sjúklinga, sem eru afar ósáttir við að fjármagn til fjölgunar á rýmum hjúkrunarheimila fyrir aldraða verði ekki veitt fyrr en árin tvöþúsund og átta og níu. Ráðherra segir tímann eðlilegan og biðlista hafa styst. Leikur að tölum, segir formaður Félags aðstandenda alzheimerssjúklinga.

Heilbrigðisráðherra tilkynnti um síðustu helgi fjölgun á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða um rúmlega 170. Það er til viðbótar þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar og mun þá plássum fjölga um 400 á næstu fjórum árum. Ráðherra segir tímann eðlilegan vegna hönnunar og undirbúnings.

María Jónsdóttir, formaður félags aðstandenda alzheimersjúklinga, segir aðbúnað og aðstæður alzheimersjúklinga í miklum ólestri og þar þurfi að bæta verulega úr nú strax en ekki eftir fjögur ár.

Anna Birna Jensdóttir forstöðukona hjúkrunarheimilisins Sóltúns er ósátt við að viðbygging við heimilið skuli ekki vera samþykkt, þar sem aðstaða og starfsfólk er þegar fyrir hendi. Um 2500 hundruð hjúkrunarrými eru nú fyrir aldraða á öllu landinu og af þeim eru eitt þúsund í fjölbýli.

Efnt verður til baráttufundar um bættan hag aldraðra í Háskólabíói laugardaginn tuttugasta og fimmta nóvember næstkomandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×