Innlent

Skútu bjargað við Akurey

Upp úr klukkan eitt í dag bárust boð um að skúta hefði strandað við Akurey. Skútan, sem er frönsk, tók niðri við eynna og við það brotnaði stýri hennar. Björgunarbátur björgunarsveitarinnar Ársæls, Gróa Pétursdóttir, var í nágrenni skútunnar og kom fljótt á vettvang. Björgunarskipið Ásgrímur S. Björnsson kom á staðinn stuttu síðar. Þegar skútan strandaði var háfjara en þrátt fyrir það tókst að losa hana um tvö leytið og eru skútan og björgunarskip á leið í land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×