Sport

Haukar völtuðu yfir Keflavík

Mynd/E.Ól

Haukastúlkur sendu hinum liðunum í Iceland Express deildinni skýr skilaboð í kvöld þegar þær tóku Keflvíkinga í kennslustund á útivelli 115-72., eftir að staðan hafði verið 55-42 fyrir gestina í hálfleik. Megan Mahoney fór á kostum í liði Hauka og skoraði 44 stig og Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig. Haukaliðið er langefst í deildinni og verður ekki auðsigrað í úrslitakeppninni ef svo fer sem horfir.

Grindavíkurstúlkur unnu auðveldan sigur á KR í vesturbænum 89-58 og skutust með sigrinum í annað sætið, upp fyrir granna sína í Keflavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×