Innlent

Segja upp 22 starfsmönnum

Tuttugu og tveimur starfsmönnum Vátryggingafélags Íslands, VÍS, verður sagt upp störfum frá og með mánaðamótum vegna skipulagsbreytinga hjá fyrirtækinu.

Að sögn Erlends Hjaltasonar, annars forstjóra Exista sem keypti fyrirtækið fyrir skömmu, eru uppsagnirnar liður í að bæta rekstur vátryggingahluta félagsins en tap hefur verið á þeim rekstri að undanförnu. "Við erum að bregðast við þeim hallarekstri en engar fleiri uppsagnir standa fyrir dyrum að svo stöddu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×