Aðhalds er enn þörf þótt verðbólguhorfur séu betri 3. nóvember 2006 06:45 Aðalhagfræðingurinn og Seðlabankastjórarnir við upphaf fundar Seðlabankinn kynnti í gærmorgun ákvörðun sína um að hafa stýrivexti óbreytta að sinni, auk þess sem kynnt var nýjasta útgáfa Peningamála, efnahagsrits bankans. Hér sjást Arnór Sighvatsson aðalhagfræðingur, lengst til vinstri og frá honum talið seðlabankastjórarnir Ingimundur Friðriksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson. MYND/GVA
Stýrivextir Seðlabanka Íslands verða óbreyttir um sinn 14 prósent. Bankinn kynnti ákvörðun sína í gærmorgun um leið og kynnt var efnahagsrit bankans, Peningamál. Bankinn segir tímasetningu ríkisins í skattalækkunum í mars bagalega og til þess fallna að stuðla að hærra vaxtastigi. "Verðbólguhorfur hafa batnað verulega frá því Seðlabanki Íslands birti síðasta mat sitt," segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Bankinn kynnti í gær ákvörðun sína um óbreytta stýrivexti, en þeir standa í 14 prósentum. "Verðbólga á þriðja ársfjórðungi jókst minna en spáð var í júlí og langtímahorfur eru einnig hagfelldari nú en þá. Þær eru þó enn óviðunandi og kalla á aðgát og aðhald. Væntingar um hraða lækkun stýrivaxta á næstunni eru því ekki raunsæjar," bætir hann við. Seðlabankinn hefur ákveðið að vera með aukavaxtaákvörðunardag 21. desember næstkomandi og fer eftir þróuninni fram að þeim tíma hvaða ákvörðun verður þá tekin. Greiningardeildir banka hafa spáð því að vaxtahækkunarferli bankans sé lokið, en Davíð sagði alls ekki útilokað að hækka þyrfti stýrivexti í desember. Tímasetning nýrra ákvarðana stjórnvalda um að aflétta gjöldum af innfluttum matvælum í mars á næsta ári segir Seðlabankinn óheppilega. Er það mat bankans að stýrivextir þurfi að vera 25 til 50 punktum hærri út tveggja ára spátímabil bankans vegna hennar. "Markmið nýkynntra ákvarðana er að auka kaupmátt ráðstöfunartekna almennings. Þær ákvarðanir munu hins vegar draga úr aðhaldi og tefja því fyrir nauðsynlegri aðlögun þjóðarbúskaparins. Aðgerðirnar draga ekki úr undirliggjandi verðbólgu þótt mæld verðbólga minnki um sinn," áréttar Davíð og segir bankann jafnframt á móti því að rýmka á ný heimildir Íbúðalánasjóðs til lánveitinga. Eins segir Davíð að bankinn telji að ekki hafi verið tímabær ákvörðun hjá stjórnvöldum að draga úr hömlum á útgjöldum ríkisins. Hann segir áhrifin af aðhaldsaðgerðum ríkisins lítil. "Ef þær hefður staðið þá hefðu þær haft einhver áhrif, en þær stóðu mjög stutt þannig að mjög erfitt er að meta að áhrifin hafi verið önnur en sálfræðileg um tíma." Langmikilvægasti óvissuþátturinn í spá Seðlabankans um þróun efnahagsmála er að sögn Arnórs Sighvatssonar, aðalhagfræðings bankans, gengi krónunnar, en hann kynnti Peningamál, efnahagsrit bankans. "Land með viðskiptahalla sem nemur fimmtungi af landsframleiðslu á gríðarlega mikið undir vilja erlendra lánadrottna til að fjármagna þennan viðskiptahalla," segir hann og bendir á að þótt hratt dragi úr honum verði hallinn enn "ósjálfbær" í lok tveggja ára spátímabils bankans, samkvæmt grunnspá. "Verulega aðhaldssamari peningastefna en er í stýrivaxtaferlinum sem liggur grunnspánni til grundvallar myndi auðvitað draga verulega úr þessari áhættu," segir hann. Stýrivextir Seðlabanka Íslands verða óbreyttir um sinn 14 prósent. Bankinn kynnti ákvörðun sína í gærmorgun um leið og kynnt var efnahagsrit bankans, Peningamál. Bankinn segir tímasetningu ríkisins í skattalækkunum í mars bagalega og til þess fallna að stuðla að hærra vaxtastigi. "Verðbólguhorfur hafa batnað verulega frá því Seðlabanki Íslands birti síðasta mat sitt," segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Bankinn kynnti í gær ákvörðun sína um óbreytta stýrivexti, en þeir standa í 14 prósentum. "Verðbólga á þriðja ársfjórðungi jókst minna en spáð var í júlí og langtímahorfur eru einnig hagfelldari nú en þá. Þær eru þó enn óviðunandi og kalla á aðgát og aðhald. Væntingar um hraða lækkun stýrivaxta á næstunni eru því ekki raunsæjar," bætir hann við. Seðlabankinn hefur ákveðið að vera með aukavaxtaákvörðunardag 21. desember næstkomandi og fer eftir þróuninni fram að þeim tíma hvaða ákvörðun verður þá tekin. Greiningardeildir banka hafa spáð því að vaxtahækkunarferli bankans sé lokið, en Davíð sagði alls ekki útilokað að hækka þyrfti stýrivexti í desember. Tímasetning nýrra ákvarðana stjórnvalda um að aflétta gjöldum af innfluttum matvælum í mars á næsta ári segir Seðlabankinn óheppilega. Er það mat bankans að stýrivextir þurfi að vera 25 til 50 punktum hærri út tveggja ára spátímabil bankans vegna hennar. "Markmið nýkynntra ákvarðana er að auka kaupmátt ráðstöfunartekna almennings. Þær ákvarðanir munu hins vegar draga úr aðhaldi og tefja því fyrir nauðsynlegri aðlögun þjóðarbúskaparins. Aðgerðirnar draga ekki úr undirliggjandi verðbólgu þótt mæld verðbólga minnki um sinn," áréttar Davíð og segir bankann jafnframt á móti því að rýmka á ný heimildir Íbúðalánasjóðs til lánveitinga. Eins segir Davíð að bankinn telji að ekki hafi verið tímabær ákvörðun hjá stjórnvöldum að draga úr hömlum á útgjöldum ríkisins. Hann segir áhrifin af aðhaldsaðgerðum ríkisins lítil. "Ef þær hefður staðið þá hefðu þær haft einhver áhrif, en þær stóðu mjög stutt þannig að mjög erfitt er að meta að áhrifin hafi verið önnur en sálfræðileg um tíma." Langmikilvægasti óvissuþátturinn í spá Seðlabankans um þróun efnahagsmála er að sögn Arnórs Sighvatssonar, aðalhagfræðings bankans, gengi krónunnar, en hann kynnti Peningamál, efnahagsrit bankans. "Land með viðskiptahalla sem nemur fimmtungi af landsframleiðslu á gríðarlega mikið undir vilja erlendra lánadrottna til að fjármagna þennan viðskiptahalla," segir hann og bendir á að þótt hratt dragi úr honum verði hallinn enn "ósjálfbær" í lok tveggja ára spátímabils bankans, samkvæmt grunnspá. "Verulega aðhaldssamari peningastefna en er í stýrivaxtaferlinum sem liggur grunnspánni til grundvallar myndi auðvitað draga verulega úr þessari áhættu," segir hann.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira