Innlent

Segir Guð lækna í gegnum sig

Kompás hefur sannanir fyrir því að Guðmundur tæli skjólstæðinga til kynlífsathafna.
Kompás hefur sannanir fyrir því að Guðmundur tæli skjólstæðinga til kynlífsathafna. MYND/Egill

Guðmundur Jónsson, forstöðumaður meðferðarheimilisins Byrgið, hefur ítrekað tælt skjólstæðinga sína til kynlífsathafna. Um þetta var fjallað í fréttaskýringaþættinum Kompási í gærkvöldi. Einnig var sagt frá málinu í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Kompás hefur undir höndum gögn sem sanna að Guðmundur tók ítrekað þátt í kynlífsathöfnum með ungum konum, skjólstæðingum sínum í meðferðarstarfinu.

Byrgið hefur um árabil rekið meðferðarheimili fyrir langt leidda fíkla og alkóhólista en starfið er allt unnið á kristilegum grunni. Í þættinum í gærkvöldi vitnuðu konur um hvernig hann tældi þær til kynlífsathafna. Þar er um svokallað BDSM kynlíf að ræða þar sem valdbeiting og drottnun er grunnþema. Viðmælandi Kompáss segir Guðmund halda því fram að guð lækni í gegnum hann.

Hann geti fyrirgefið syndir fyrir hönd guðs og að sæði hans lækni. Þrátt fyrir að Kompás hafi vitnisburð fjögurra kvenna um eigin reynslu og annarra á þessu sviði þvertekur Guðmundur fyrir að þessar ásakanir séu sannar. Gögn Kompáss sýna þó að Guðmundur hefur meðal annars sent konum myndir af getnaðarlim sínum.

Kompás hefur einnig rannsakað fjármál Byrgisins. Í skýrslu sem varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins lét gera árið 2001, og Kompás hefur undir höndum, kemur fram að fjármálastjórn Byrgisins sé í molum.

Ekki náðist í Guðmund Jónsson í gærkvöldi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×