Viðskipti innlent

Samdráttur milli fjórðunga

Heildarhagnaður sautján félaga í Kauphöll Íslands dregst verulega saman á milli fyrsta og annars ársfjórðungs. Þetta er aðallega rakið til bankanna.

Á fyrsta ársfjórðungi, sem var algjört mettímabil, högnuðust félögin alls um tæpa 69,8 milljarða króna en miðað við spár greiningardeilda Glitnis banka og Landsbankans má búast við að heildarhagnaður verði rúmir 26,5 milljarðar á öðrum ársfjórðungi. Er þetta meira en 43 milljarða viðsnúningur eða 62 prósenta samdráttur.

Heildarhagnaður bankanna fjögurra, Glitnis, KB banka, Landsbankans og Straums, lækkar úr 61 milljörðum króna í rúmlega átján milljarða milli fjórðunga. Samanlagður hagnaður fyrirtækjanna sautján nemur því um 96 milljörðum króna á fyrri hluta árs.

Þrátt fyrir samdrátt er bönkunum spáð mestum hagnaði á nýliðnum ársfjórðungi. Gert er ráð fyrir að KB banki hagnist um tíu milljarða króna, Glitnir um sjö milljarða og Landsbankinn um 2,9 milljarða. Nú bregður hins vegar svo við að FL Group og Straumi er spáð tapi á fjórðungnum, FL Group 1,4 milljörðum en Straumi um 1,8 milljörðum. Einnig er gert ráð fyrir að HB Grandi og TM hafi tapað yfir einum milljarði króna.

Avion Group, Actavis og Bakkavör skila góðum hagnaði gangi spárnar eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×