Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Árni Sæberg skrifar 26. mars 2026 15:48 Skúli Mogensen fagnar fyrstu Airbus A321-þotu Wow Air á Reykjavíkurflugvelli árið 2015. Vilhelm Gunnarsson Landsréttur hefur sýknað sjö kröfuhafa Wow air af kröfum þrotabús félagsins um riftun á mörg hundruð milljóna króna greiðslum sem félagið greiddi þeim skömmu fyrir gjaldþrot þess. Skúli Mogensen og stjórnarmenn í félaginu voru einnig sýknaðir af skaðabótakröfu upp á rúma tvo milljarða króna.
Héraðsdómur hafði dæmt kröfuhafana til að greiða þrotabúinu fleiri hundruð milljóna auk dráttarvaxta og ekki er óvarlegt að áætla að þrotabúið verði af vel rúmlega milljarði króna vegna viðsnúningsins. Dómar Landsréttar í málunum sjö voru kveðnir upp klukkan 15. Þeir hafa ekki verið birtir og því liggja forsendur þeirra ekki fyrir að svo stöddu. Hæstiréttur muni vilja eiga síðasta orðið Sveinn Andri Sveinsson, skiptastjóri þrotabús Wow air, segir í samtali við Vísi beint eftir uppkvaðningu dómana að honum sýnist að Landsréttur hafi beitt annarri túlkun á 134. grein laga um gjaldþrotaskipti og fleira en héraðsdómur. Greinin mælir meðal annars fyrir um að rifta megi greiðslu ef greidd var fjárhæð sem hefur skert greiðslugetu þrotamannsins verulega. Í héraði var fallist á að sú hefði verið raunin á þeim tímapunkti þegar umræddar greiðslur voru inntar af hendi. Sveinn Andri segir að Landsréttur hafi aftur á móti litið til lengra tímabils og ekki talið greiðslurnar hafa skert greiðslugetu Wow air. Þá segir Sveinn Andri að hann muni óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar og hann telji líklegt að Hæstiréttur muni vilja eiga lokaorðið í málinu. Ellefu mál í heildina Þann 8. nóvember gengu dómar í málunum í Héraðsdómi Reykjavíkur ásamt dómum í fjórum öðrum málum. Þeim fjórum var ekki áfrýjað. Vísir fjallaði ítarlega um dómana í héraði í fréttinni hér að neðan: Málin voru höfðuð af þrotabúi Wow air á hendur fjölda kröfuhafa Wow air, Skúla, Liv Bergþórsdóttur, stjórnarformanni Wow air, og stjórnarmönnunum Helgu Hlín Hákonardóttur og Davíð Mássyni. Þrjú síðastnefndu voru sakaukastefndu og fimm vátryggingafélögum var stefnt til réttargæslu. Unnu að björgun og fengu svigrúm Kröfuhöfum Wow air var stefnt til riftunar greiðslna sem þeim bárust skömmu fyrir gjaldþrot Wow air árið 2019 og Skúla og félögum til óskiptrar greiðslu skaðabóta vegna þess tjóns sem þeir voru sagðir hafa bakað þrotabúinu. Í dómum héraðsdóms sagði var ekki talið að stjórnendur Wow air hefðu bakað sér skaðabótaskyldu með saknæmri háttsemi í aðdraganda gjaldþrotsins. Í dómunum sagði að bótaábyrgð yrði aðeins felld á stjórnendur yrði komist að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu valdið tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Dómurinn hefði talið að með vísan til aðstæðna og málsatvika í aðdraganda gjaldþrotsins að við sakarmat beri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Taki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar sé saknæm mið af slíku svigrúmi.
WOW Air Gjaldþrot Dómsmál Fréttir af flugi Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira