Lífið

Fjarlægð úr tré

daryl hannah Leikkonan Daryl Hannah er lögregla fjarlægði hana úr trénu.
daryl hannah Leikkonan Daryl Hannah er lögregla fjarlægði hana úr trénu. MYND/AP

Leikkonan Daryl Hannah var fjarlægð af lögregluþjónum ofan úr tré í jurtagarði í Los Angeles eftir að hafa mótmælt byggingu vöruhúss á svæðinu.

Hannah hefur að undanförnu safnað hundruðum milljóna til að bjarga garðinum. Um 350 bændur hafa ræktað þar blóm og grænmeti frá árinu 1992. Þjóðlagasöngkonan Joan Baez var einnig á meðal þeirra sem mótmæltu byggingu vöruhússins.

Rúmlega eitt hundrað lögregluþjónar voru á svæðinu til að fjarlægja mótmælendurna og voru sautján þeirra handteknir inni í garðinum. 27 til viðbótar voru handteknir fyrir utan garðinn.

Á meðal fleiri stjarna sem vilja halda garðinum í sama horfi eru Willie Nelson, Danny Glover og Laura Dern. "Ég er sannfærð um að það sé rétt að taka afstöðu og styðja bændurna," sagði Hannah áður en hún var fjarlægð úr trénu.

Daryl Hannah sló í gegn í kvikmyndinni Splash á níunda áratugnum. Síðan þá hefur hún meðal annars leikið í Roxanne og Kill Bill 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.