Skreytir sig með vafasömum fjöðrum 16. mars 2005 00:01
Olís er vinsælasta fyrirtækið í smásölu samkvæmt svokallaðri Ánægjuvog Gallups og fagnar mjög. FÍB telur hins vegar að fyrirtækið skreyti sig með vafasömum fjöðrum, enda hafi könnuninni lokið um mánuði áður en samráðsskýrsla Samkeppnisstofnunar kom út. Markaðsstjóri Olís telur fólk gera greinarmun á eigendum fyrirtækisins og þeirri þjónustu sem boðin er. Auglýsing frá Olís þar sem niðurstaða könnunarinnar er kynnt hljómaði á öldum ljósvakans í gær og kom kannski einhverjum á óvart að olíufélag væri svona vinsælt í ljósi nýliðinna tíðinda af samráði þeirra. Þessi könnun Gallup var gerð frá júlí og fram í lok september, skýrsla Samkeppnisstofnunar var hins vegar ekki gerð opinber fyrr en um mánuði síðar eða í lok október. Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur einmitt að Olís sé að nota vafasamir fjaðrir til að skreyta sig með og flaggi niðurstöðunum sem nýjum, en fólk hafi verið spurt um fyrirtækið löngu áður en það vissi hvernig olíufélögin þrjú hefðu hagað sínum málum. Helga Friðriksdóttir, markaðsstjóri Olís, sagðist í samtali við Stöð 2 fagna þessum niðurstöðum, en hún vissi ekki hvers vegna Gallup hefði ekki birt þær fyrr. Hún taldi ekki að það hefði breytt miklu fyrir fyrirtækið hefði könnunin verið gerð eftir að samráðsskýrslan kom út því fólk geri greinarmun á þessum tveimur málum, og geri greinarmun á eigendum fyrirtækisins og starfsfólkinu sem veiti þjónustuna á bensínstöðvum.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira