Hyggja á endurbætur á sláturhúsi 20. mars 2005 00:01
Dalamenn hafa ákveðið að verja tugmilljónum króna í endurbætur á sláturhúsinu í Búðardal til að unnt verði að hefja slátrun þar í haust. Með því skapast tuttugu heilsársstörf í Dalabyggð. Afurðastöðin í Búðardal var um árabil einn helsti burðarásinn í atvinnulífi Dalasýslu enda þriðji stærsti atvinnuveitandi sýslunnar. Þarna var ekki aðeins sláturhús heldur einnig kjötvinnsla þar sem tíu til fimmtán manns unnu allt árið um kring. Starfsfólki fjölgaði svo verulega í sláturtíð á haustin en ársverkin voru talin 25 talsins. En nú eru vinnslusalirnir tómir. Kjötvinnslan lagðist af vorið 2003 og síðast var slátrað haustið 2003. Dalamenn hugðust slátra þarna í fyrra en var þá synjað um sláturleyfi. Haraldur Líndal Haraldsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, segir að Dalamenn ætli engu að síður að berjast og á aðalfundi sláturhússins hafi verið samþykkt að hefja endurbætur á húsinu. Stefnt sé að því að ljúka þeim fyrir 1. ágúst þannig að húsið standist allar kröfur varðandi sláturleyfi og annað slíkt. Áætlað er að endurbæturnar kosti 45 milljónir króna. Malbika þarf hlaðið, betrumbæta húsið að utan og endurnýja starfsmannaaðstöðu. Sláturhúsið er í eigu Byggðastofnunar og Dalabyggðar en reksturinn verður leigður Dalalambi, fyrirtækis í eigu sveitarfélagsins. Haraldur segir það skipta miklu máli að starfsemi sé í sláturhúsinu því það skapi að minnsta kosti 20 heilsársstörf og hafi velt um 30-40 milljónum í launagreiðslur. Þetta sé því gríðarlega stórt mál fyrir samfélagið í Dölunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Sjá meira