Erlent

Snyrtivörur unnar úr líkum fanga

Snyrtivörur með kollageni, sem unnið er úr líkum kínverskra fanga, eru seldar í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta er fullyrt í breska dagblaðinu Guardian. Kínverskt fyrirtæki býður kollagen til lýtalækninga og snyrtivöruframleiðanda á verði sem er um fimm prósent þess sem fyrirtæki á Vesturlöndum hafa að jafnaði þurft að greiða fyrir efnið, sem sagt er geta unnið kraftaverk fyrir útlitið. Ástæða þess að kollagenið fæst á fínum kjörum hjá kínverska fyrirtækinu er sú að það er unnið úr líkum fanga sem hafa verið teknir af lífi. Guardian greinir frá því að kínverska fyrirtækið hafi boðið vestrænum snyrtivöru- og lýtalækningafyrirtækjum efnið til kaups að undanförnu, beggja vegna Atlantshafsins, en vegna lagaatriða er ekki gefið upp hvaða snyrtivöruframleiðendur er um að ræða. Talsmaður kínverska fyrirtækisins sagði blaðamanni Guardian, sem þóttist vera hugsanlegur viðskiptavinur, að það hefði komið honum mjög á óvart að Evrópubúar væru hikandi við að nota efni unnið úr líkum fanga í snyrtivörur og til lýtalækninga. Kollagen er prótínefni sem finnst í miklu magni í beinum og skinni manna. Það er meðal annars notað í lýtaaðgerðum þegar gera á varirnar þrýstnari og einnig til að slétta hrukkur. Þá má nota efnið til að loka opnum sárum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×