Íbúðaverðið hefur tvöfaldast 13. apríl 2005 00:01
Fermetraverð í Reykjavík hefur rúmlega tvöfaldast á tíu árum. Staðgreiðsluverð á fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi var að meðaltali tæpar 68 þúsund krónur á fermetrann árið 1995. Í dag er það rúmar 166 þúsund krónur, samkvæmt gögnum hjá Fasteignamati ríkisins. Fasteignaverðið hefur aukist sérstaklega mikið síðustu árin. Það hækkaði um 13 þúsund krónur milli ára 2002 og 2003 og um 15 þúsund krónur milli ára 2003 og 2004. Langmest hefur það þó hækkað frá 2004 til 2005 eða um heilar 29 þúsund krónur. Rétt er að hafa í huga að fasteignaverðið árið 2005 er miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins. Ólafur B. Blöndal, fasteignasali og fyrrverandi varaformaður Félags fasteignasala, segir að fasteignaverð hafi haldið áfram að hækka síðustu vikur og mánuði, það hafi til dæmis aukist um fimm prósent síðustu fjórar vikurnar, þrátt fyrir spár um að það taki að lægja á fasteignamarkaði. Hann telur að fasteignaverð sé víða komið upp í 200 þúsund krónur á fermetrann og nefnir sem dæmi fjögurra herbergja íbúð í litlu fjölbýli í grónu hverfi. Sú íbúð kostar í dag um 18,5 milljónir en kostaði um 10 milljónir fyrir tíu árum. Í nýjum íbúðum er fermetraverðið 225 þúsund, til dæmis á Vatnsendasvæði. "Tölur segja að hækkunin hafi verið fimm prósent undanfarnar fjórar vikur sem kemur okkur fasteignasölum töluvert á óvart því að við höfum ekki átt von á þetta mikilli hækkun. Verðið er ennþá að stíga en kannski ekki alveg jafn hratt og undanfarna mánuði. Við teljum okkur alls ekki sjá fyrir endann á þessum hækkunum. Það er ennþá eftirspurn eftir fasteignum og lánum," segir hann. Félagsmálaráðuneytið hefur hækkað hámarkslán Íbúðalánasjóðs úr 14,9 milljónum í 15,9 milljónir og tekur breytingin þegar í stað gildi. Ólafur segir að þetta sé góð hækkun en gera þurfi enn betur.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira