Viðbúnaðarástand á Vestfjörðum 17. janúar 2005 00:01
Almannavarnanefndir á norðanverðum Vestfjörðum, í samráði við Veðurstofu Íslands, lýstu fyrir stundu yfir viðbúnaðarástandi í öllum þéttbýlisstöðum á svæðinu vegna snjóflóðahættu. Mikið hefur snjóað við Ísafjarðardjúp síðan í nótt eða allt að fjórir millímetrar á klukkustund að sögn Leifs Svavarssonar á Veðurstofunni. Mikið fóður er því fyrir skafrenning og spáð er norðan 15 til 23 metrum á sekúndu í dag. Þá varar Vegagerðin við snjóflóðahættu á vegunum um Óshlíð, Súðavíkurhlíð og Flateyrarveg. Þrjú snjóflóð hafa fallið á Óshlíðarveginn en Vegagerðarmenn hafa streist við að halda honum opnum fram í hádegið svo fólk komist til síns heima áður en óveðrið skellur á, ef veðurspáin gengur eftir, að sögn Önundar Jónssonar yfirlögregluþjóns á Ísafirði. Önundur segir að snjóað hafi nánast samfellt síðan klukkan fjögur í morgun en þó misjafnlega mikið. Á Ísafirði séu um 35-40 sentímetrar af jafnföllnum snjó sem sé laus í sér. Ef spáin gangi eftir fari snjórinn því af stað og búast megi við mikilli blindu og kófi. Þá sé erfitt að halda vegum utan þéttbýlis opnum. Önundur sagði almannavarnanefnd í viðbragðsstöðu og hvatti fólk til þess að halda sig heima ef veður versnaði síðar í dag. Mikill snjór væri á svæðinu og fólk lenti fljótt í ógöngum. Alls staðar þar sem skafið gæti myndi skafa í skafla fljótt og þeir staðir þar sem búið væri að grafa snjógöng tepptust því fljótt. Aðspurður sagði Önundur snjósöfnun í hlíðum hættulegasta og þegar lausamjöll skæfi festist hún í giljum og þar kæmu flóðin mest niður.
Fréttir Innlent Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Sjá meira