Sport

Fram hafði betur í toppslagnum

Framarar eru á góðri siglingu
Framarar eru á góðri siglingu

Framarar gerðu góða ferð á Ásvelli í dag og lögðu Hauka í toppslag DHL-deildar karla í handbolta, 33-26. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 11 mörk fyrir Fram, þar af 9 úr vítum, en Arnar Pétursson skoraði 6 fyrir Hauka. Haukarnir byrjuðu betur í leiknum, en varnarleikur Fram skóp sigurinn í dag og greinilegt að liðið er til alls líklegt undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar.

Fylkir sigraði Víking/Fjölni á útivelli 32-25 og FH vann Aftureldingu á útivelli 32-26. Leik ÍR og ÍBV er enn ekki lokið, en hann hófst nokkru síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×