Sport

Fyrsti sigur Hauka

Haukar unnu sinn fyrsta leik í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld, þegar liðið sigraði Hamar/Selfoss á útivelli 92-87. Njarðvíkingar eru enn ósigraðir eftir að þeir völtuðu yfir Hött fyrir austan 102-66 og Keflvíkingar halda enn pressu á granna sína með auðveldum sigri gegn Þór 83-61. KR skellti ÍR 84-75 og Grindavík lagði Fjölni 98-83. Loks vann Snæfell granna sína í Skallagrími 75-74 í hörkuleik.

Í kvennaflokki vann lið Hauka auðveldan sigur á KR 110-66.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×