Talaði mál sem fólk hafi skilið 7. september 2005 00:01
Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir styrkleika Davíð Oddssonar sem stjórnmálamanns hafa verið að hann hafi talað mál sem fólk hafi skilið, hann hafi verið beinskeyttur og harður við andstæðinga sína og náð til fólks á þann hátt. Hann hafi skotið fast þegar hann hafi verið gagnrýndur, og oft skotið í mark, sem skýri það kannski hversu lengi hann hafi verið við völd. Spurður um það hvað hann telji að Davíðs verð minnst fyrir í stjórnmálasögunni segir Baldur margt að nefna. Hann hafi haldið áfram markaðsvæðingu hagkerfisins, að fyrirtæki gætu ekki leitað beint til ríkissjóðs þegar þeim hefði gengið illa. Þá hafi ýmis ríkisfyrirtæki, eins og bankarnir, verið einkavædd í tíð Davíðs og það hafi gjörbreytt íslensku viðskiptalífi og haft gríðarleg áhrif á íslenskt þjóðfélag. Þá hafi ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar náð að viðhalda stöðugleika í efnahagsmálum með lágri verðbólga. Aukin áhersla hafi verið lögð á að lækka skatta á bæði einstaklinga og fyrirtæki. Þá muni eflaust einhverjir nefna styrkingu fiskveiðistjórnunarkerfisins. Baldur segir að þegar horft sé til utanríkismálin þá hafi Davíð viðhaldið góðum tengslum við Bandaríkin og varnarviðbúnaði þeirra á Miðnesheiði. Þá hafi hann verið andsnúinn því að sækja um aðild að Evrópusambandinu sem sé þvert á það sem ríkin í kringum okkur hafi gert.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Erlent Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Erlent Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Innlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Innlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Fleiri fréttir Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Sjá meira